Skrifstofa starfsstöðva og þróunar
Skrifstofa starfsstöðva og þróunar
Skrifstofa starfsstöðva og þróunar

Forstöðumaður stuðnings- og stoðþjónustu fyrir fullorðið fatlað fólk

Skrifstofa starfsstöðva og þróunar á velferðarsviði Kópavogsbæjar auglýsir laust til umsóknar starf forstöðumanns stuðnings- og stoðþjónustu fyrir fullorðið fatlað fólk.

Starfið felur í sér daglega stjórnun, skipulag og eftirfylgd sértækrar stoðþjónustu við fatlað fólk í samræmi við mat á stuðningsþörf, þjónustuáætlanir, ákvarðanir sveitarfélagsins og markmið þjónustunnar hverju sinni. Í starfinu felst fagleg umgjörð þjónustunnar, mannauðstengd verkefni, samskipti við notendur og aðstandendur í samráði við notendur, samstarf við aðrar þjónustueiningar og samþætting þjónustu þegar við á.

Um er að ræða nýtt og spennandi starf í mótun. Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi með reynslu af því að stýra eða skipuleggja stoð- og stuðningsþjónustu til að taka þátt í móta starfsemina og leiða breytingar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stuðlar að sjálfstæðu lífi, virkri samfélagsþátttöku, sjálfræði og lífsgæðum notenda í samræmi við réttindamiðaða þjónustu og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
  • Hefur umsjón með gerð, framkvæmd og endurskoðun þjónustuáætlana, eftir því sem við á, og tryggir markvissa eftirfylgd og skráningu.
  • Skipuleggur, samhæfir og metur þjónustu í samvinnu við notendur, aðstandendur eftir atvikum, ráðgjafa, heimahjúkrun og aðra samstarfsaðila.
  • Skipuleggur vinnutíma, viðveru og vaktafyrirkomulag starfsfólks, eftir því sem við á, og tryggir að mönnun taki mið af þörfum þjónustunnar og fjárheimildum.
  • Heldur reglulega starfsmannafundi, þjónustufundi og aðra samráðsfundi og tryggir að upplýsingagjöf, skráning og eftirfylgd sé skýr.
  • Vinnur að gæðamálum, öryggi, áhættumati, umbótum og samræmdu verklagi í þjónustunni.
  • Sinnir öðrum verkefnum sem yfirmaður felur forstöðumanni og samræmast hlutverki starfsins.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun á grunnstigi sem nýtist í starfi, svo sem á sviði félagsráðgjafar, þroskaþjálfunar, sálfræði eða sambærileg menntun.
  • Háskólamenntun á meistarastigi sem nýtist í starfi eða mikil starfs- og stjórnunarreynsla á viðkomandi sérfræðisviði.
  • Reynsla af stjórnun, skipulagningu og framkvæmd þjónustu við fatlað fólk.  
  • Þekking á lögum, reglum og verklagi sem gilda um þjónustu við fatlað fólk, félagsþjónustu sveitarfélaga, stjórnsýslu, persónuvernd og vinnuvernd.
  • Hæfni til að leiða teymi, skipuleggja þjónustu, forgangsraða verkefnum, leysa úr flóknum málum og vinna með ólíkum samstarfsaðilum.
  • Góð færni í samskiptum, skráningu, upplýsingamiðlun og notkun stafrænna kerfa í opinberri stjórnsýslu.
  • Fagleg dómgreind, frumkvæði, ábyrgðarkennd og skýr sýn á réttindamiðaða og einstaklingsmiðaða þjónustu.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti. 
Fríðindi í starfi

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins. 

Auglýsing birt10. september 2026
Umsóknarfrestur27. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Vallakór 4, 203 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar