Heilbrigðisstofnun Vestfjarða
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða

Félagsráðgjafi á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða

Starfið tilheyrir geðheilsuteymi barna en nær einnig til verkefna þvert á stofnunina í samstarfi við fagfólk, deildir og aðra þjónustuaðila.

Starfið felur í sér lágþröskuldaþjónustu, félagsráðgjöf, stuðning við einstaklinga og fjölskyldur, fjölskylduvinnu, ráðgjöf um réttindi og úrræði, auk þátttöku í þverfaglegri teymisvinnu.

Áhersla er lögð á snemmtæka íhlutun, aðgengi að þjónustu og stuðning við einstaklinga og fjölskyldur.

Um er að ræða 30% til 50% starf eftir samkomulagi

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfið felur í sér félagsráðgjöf, stuðningsviðtöl og lágþröskuldaþjónustu við einstaklinga og fjölskyldur vegna félagslegra, fjölskyldutengdra og sálfélagslegra áskorana. Viðkomandi styður skjólstæðinga við að takast á við breytingar, álag og erfiðar lífsaðstæður, veitir ráðgjöf um réttindi og þjónustuúrræði og aðstoðar við að tengja fólk við viðeigandi stuðning innan heilbrigðis-, félags- og menntakerfis.

Sérstök áhersla er á stuðning við foreldra og fjölskyldur, fjölskylduvinnu, samstarf við mæðra- og ungbarnavernd og að efla verndandi þætti í nærumhverfi barna. Starfið er unnið í nánu þverfaglegu samstarfi við lækna, hjúkrunarfræðinga, ljósmæður, sálfræðinga og annað fagfólk, auk samráðs við sveitarfélög og aðrar stofnanir eftir þörfum.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Starfsleyfi sem félagsráðgjafi frá embætti landlæknis.

  • Reynsla af félagsráðgjöf, stuðningsviðtölum og ráðgjöf við einstaklinga og fjölskyldur.

  • Þekking á íslensku velferðar-, heilbrigðis- og félagsþjónustukerfi.

  • Reynsla af fjölskylduvinnu, foreldraráðgjöf eða starfi með börnum og fjölskyldum er kostur.

  • Reynsla af þverfaglegu samstarfi er kostur.

  • Góð samskiptahæfni, virk hlustun og lausnamiðuð nálgun.

  • Sjálfstæði, frumkvæði og skipulögð vinnubrögð.

  • Hæfni til að vinna með viðkvæm og flókin mál af fagmennsku.

  • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti.

Fríðindi í starfi

Boðið er upp á góða aðlögun í upphafi starfs og aðstoð við öflun húsnæðis.

Auglýsing birt4. september 2026
Umsóknarfrestur18. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Torfnes, 400 Ísafjörður
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Félagsráðgjafi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar