
Bjarmahlíð - miðstöð fyrir þolendur ofbeldis
Bjarmahlíð er miðstöð fyrir þolendur ofbeldis og býður upp á ráðgjöf og upplýsingar fyrir einstaklinga frá 16 ára aldri sem hafa verið beittir ofbeldi. Hjá Bjarmahlíð er unnið með þolendum ofbeldis á þeirra forsendum. Öll þjónusta og ráðgjöf er undir sama þaki með það að markmiði að auðvelda þolendum að leita sér aðstoðar.
Bjarmahlíð leggur áherslu á þverfaglega samvinnu mismunandi stofnanna og samtaka sem koma að vinnu á staðnum. Brotaþola er mætt í hlýlegu og öruggu umhverfi, á þeirra forsendum og einstaklingum að kostnaðarlausu.
Einstaklingsviðtöl og ráðgjöf er i boði svo og tenging við aðra þjónustu sem er til staðar, þ.m.t velferðarþjónustu sveitafélaganna og heilsugæslu. Markmiðið Bjarmahlíðar er að efla fræðslu og umfjöllun um eðli og afleiðingar ofbeldis, ásamt því gefa skýr skilaboð um að ofbeldi verði ekki liðið.

Bjarmahlíð - miðstöð fyrir þolendur ofbeldis - teymisstjóri
Bjarmahlíð leitar að teymisstjóra
Bjarmahlíð er þolendamiðstöð sem starfar samkvæmt hugmyndafræði Family Justice Centers, þar sem lögð er áhersla á að veita þolendum ofbeldis þverfaglegan stuðning á einum stað. Jafnframt vinnur miðstöðin markvisst að forvörnum og fyrirbyggjandi aðgerðum gegn ofbeldi.
Leitað er að öflugum, metnaðarfullum og drífandi einstaklingi í starf teymisstjóra. Teymisstjóri gegnir lykilhlutverki í þjónustu við þolendur ofbeldis, leiðir teymi fagfólks, tryggir gæði þjónustunnar og kemur fram sem málsvari skjólstæðinga. Um er að ræða krefjandi en afar gefandi starf fyrir einstakling með brennandi áhuga á mannréttindum og velferð þolenda ofbeldis.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Fagleg forysta og stefnumótun: Leiða teymi fagfólks, tryggja gæði þjónustu, taka þátt í stefnumótun og tryggja framgang stefnu Bjarmahlíðar.
- Daglegur rekstur og þjónusta: Skipulag og ábyrgð á daglegum rekstri, vörslu og meðferð fjármuna, móttöku og þjónustu við skjólstæðinga.
- Skjólstæðingaviðtöl og úrræði: Taka viðtöl við skjólstæðinga, meta þarfir þeirra og finna viðeigandi úrræði í samráði við þá.
- Starfsmannahald: Skipulag vinnutíma starfsmanna, utanumhald um vinnuskil og orlofsskipulag.
- Fjármál og fjáröflun: Fjáröflun fyrir samtökin, þ.m.t. gerð styrkumsókna, og gerð draga að ársskýrslu og fjárhagsáætlun í samstarfi við framkvæmdaráð.
- Samstarf og tengslanet: Uppbygging og viðhald á virku samstarfi við lykilsamstarfsaðila, svo sem lögreglu, barnavernd og félagsþjónustu.
- Fræðsla og kynningarstarf: Skipulag og framkvæmd kynninga á starfsemi miðstöðvarinnar fyrir fagfólk og almenning.
- Kynningar- og upplýsingamál: Koma fram sem talsmaður Bjarmahlíðar í fjölmiðlum og á opinberum vettvangi í samráði við framkvæmdaráð, ásamt ábyrgð á vefsíðu og samfélagsmiðlum.
- Stjórnsýsla: Sitja fundi framkvæmdaráðs og rita fundargerðir.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun: Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Starfsreynsla: Reynsla af vinnu með þolendum ofbeldis.
- Stjórnunarreynsla: Stjórnunarreynsla og reynsla af teymisvinnu er æskileg.
- Fagþekking:
- Þekking á áfallamiðaðri nálgun og helstu úrræðum fyrir þolendur ofbeldis.
- Þekking á réttarvörslukerfinu, félagsþjónustu, barnavernd og stjórnsýslu er mikill kostur.
- Tungumálakunnátta:
- Mjög góð íslenskukunnátta og hæfni til að miðla upplýsingum skýrt í ræðu og riti.
- Góð enskukunnátta í ræðu og riti. Önnur tungumálakunnátta er kostur.
- Persónulegir eiginleikar:
- Framúrskarandi samskiptahæfni og geta til að vinna með fjölbreyttum hópi fólks.
- Rík leiðtoga- og skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Hæfni til að takast á við krefjandi aðstæður og sýna seiglu í starfi.
- Hæfni til að koma fram sem talsmaður samtakanna.
Auglýsing birt26. ágúst 2026
Umsóknarfrestur7. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Aðalstræti 14, 600 Akureyri
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (11)

Sálfræðingur á endurhæfingardeild Grensási
Landspítali

Fagstjóri í búsetuþjónustu Akraneskaupstaðar
Akraneskaupstaður

Komdu til liðs við okkur á Andrastaði – starf með tilgang
Andrastaðir

Shift Manager
Bus4u Iceland

Skaðaminnkandi verkefni Rauða krossins - helgarvinna á laugardögum í Ylju
Rauði krossinn á höfuðborgarsvæðinu

Sálfræðingur í deild barna og fjölskyldna
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Félagsráðgjafi í deild barna- og fjölskyldna
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Icekorea leitar að sölumanneskju / söluráðgjafa
Icekorea

Stuðningsaðili á Velferðarsviði
Kópavogsbær

Þjónustufulltrúi
Bayern líf

Ungur frumkvöðull leitar að hægri hönd
Sprotasamsteypa / fjárfestir