Andrastaðir
Andrastaðir
Andrastaðir

Komdu til liðs við okkur á Andrastaði – starf með tilgang

Ert þú drífandi, jákvæð og lausnamiðuð manneskja sem hefur gaman af því að vinna með fólki?

Andrastaðir leita að öflugu fólki til liðs við okkur á heimili fyrir fullorðna karlmenn með fjölþættan vanda á Kjalarnesi.

Starfið er fjölbreytt og gefandi og hentar vel þeim sem hafa frumkvæði, eiga auðvelt með að vinna í teymi og vilja láta gott af sér leiða. Hjá okkur gefst spennandi tækifæri til að taka virkan þátt í áframhaldandi uppbyggingu og þróun Andrastaða.

Unnið er í vaktavinnu og við erum opin fyrir mismunandi starfshlutfalli.

Langar þig í starf þar sem þú getur haft raunveruleg áhrif? Þá viljum við heyra frá þér.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Marý í tölvupósti: [email protected]

andrastadir.is

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Hvetja og styðja þjónustuþega til aukins sjálfstæðis, sjálfshjálpar og virkrar þátttöku í eigin lífi.
  • Veita félagslegan stuðning og hvatningu með áherslu á styrkleika, áhugasvið og markmið hvers einstaklings.
  • Styðja þjónustuþega við daglegt líf og heimilishald, svo sem matseld, þrif og önnur verkefni, með það að markmiði að efla færni og sjálfstæði.
  • Taka virkan þátt í að skapa og þróa ný tækifæri til virkni, félagslegrar þátttöku og innihaldsríks daglegs lífs.
  • Styðja þjónustuþega við að uppgötva og efla eigin styrkleika og undirbúa þá fyrir þátttöku á vinnumarkaði með virkni, starfsþjálfun og markvissum stuðningi.
Menntunar- og hæfniskröfur

Við leitum að þér sem...

  • Ert lausnamiðuð/aður, sýnir frumkvæði og átt auðvelt með að takast á við fjölbreyttar aðstæður.
  • Hefur jákvætt viðmót, góða samskiptahæfni og sterka hæfni til teymisvinnu.
  • Getur unnið sjálfstætt, sýnt ábyrgð og tekið ákvarðanir þegar þess þarf.
  • Hefur áhuga á að starfa með fólki með fjölþættar stuðningsþarfir og geðrænar áskoranir.
  • Hefur reynslu af sambærilegu starfi – það er kostur en ekki skilyrði.
  • Hefur háskólamenntun sem nýtist í starfi – það er kostur.
  • Hefur góða íslenskukunnáttu.
  • Ert með gilt ökuskírteini.
  • Getur framvísað hreinu sakavottorði.

Við leggjum ekki síður áherslu á persónulega eiginleika, viðhorf og vilja til að læra og þróast í starfi en fyrri reynslu.

Auglýsing birt20. ágúst 2026
Umsóknarfrestur31. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
brautarholtsvegur 63
Starfstegund
Hentugt fyrir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar