NPA miðstöðin
NPA miðstöðin
NPA miðstöðin

Óska eftir félagslyndri og skemmtilegri aðstoðarkonu

Ég er 36 ára kona, hjólastólanotandi og bý í 103 Reykjavík. Ég er að leitast eftir áreiðanlegri og félagslyndri NPA aðstoðarkonu í 50–80% starf, auk þess sem ég óska eftir fólki í afleysingar.

Starfið snýst fyrst og fremst um að aðstoða mig við að lifa mínu lífi á þann hátt sem ég kýs, bæði í hversdagslegum verkefnum og því sem gerir dagana skemmtilegri.

Starfið byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf, þar sem áhersla er lögð á virðingu, samvinnu og jákvæð samskipti.

Mig vantar manneskju sem er félagslynd, framtakssöm og tilbúin að gefa mér smá pepp þegar mig vantar hvatningu til þess að koma mér af stað og taka virkari þátt í því sem mig langar að gera. Einhver sem er hress og óhrædd við að koma með hugmyndir og hvetja mig áfram í daglegu lífi.

Aðstoðarkona mín þarf m.a. að geta keyrt bílinn minn, aðstoðað við heimilishald, elda, þrífa, innkaup. Sem aðstoðarkona aðstoðar þú mig í daglegu lífi og hjálpar mér að viðhalda sjálfstæði og virkni í daglegum verkefnum.

Vaktirnar eru:

  • Virkir dagar: kl. 8–15 og kl. 15–22
  • Helgar: kl. 8–20

Hæfniskröfur:

  • íslensku kunnátta (mikilvægt).
  • Stundvísi
  • Hugmyndarík
  • Gilt bílpróf (mikilvægt)
  • Hreint sakavottorð
  • Reyklaus
  • Líkamlega sterk

Laun eru samkvæmt sérkjarasamningi NPA miðstöðvarinnar og Eflingar. Nánari upplýsingar um NPA má finna á www.npa.is

Auglýsing birt13. ágúst 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Urðarhvarf 8, 203 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Mannleg samskipti
Starfsgreinar
Starfsmerkingar