
Skólamatur
Skólamatur ehf. er fjölskyldufyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu og framreiðslu á hollum og ferskum mat, elduðum frá grunni fyrir leik- og grunnskóla.
Skólamatur ehf. var stofnað í janúar 2007. Fyrirtækið er í eigu Axels Jónssonar matreiðslumeistara sem hefur áratuga reynslu af alhliða veitingarekstri.
Hjá Skólamat starfa um 200 starfsmenn. Starfsmannavelta fyrirtækisins er lág og starfsaldur hár. Rúmlega helmingur núverandi starfsmanna hefur unnið í 5 ár eða lengur hjá fyrirtækinu.
Skólamatur leggur áherslu á að skapa fjölskylduvænt vinnuumhverfi þar sem hæfileikar, þekking og reynsla hvers starfsmanns fær að njóta sín. Við leggjum áherslu á símenntun og fræðslu og að starfsmenn fái tækifæri til þess að eflast og þróast í starfi.
Markmið Skólamatar er að ráða, efla og halda hæfu og reynslumiklu starfsfólki.
Gildi Skólamatar eru: Jákvæðni, fjölskylda og virðing.

Álftanesskóli - mötuneyti
Komdu að vinna fyrir mikilvægasta fólkið!
Skólamatur leitar að jákvæðu og duglegu starfsfólki í mötuneyti sitt í Álftanesskóla í Garðabæ.
Vinnutíminn er frá kl.10:00 til 14:00 alla virka skóladaga.
Starfið felst í undirbúningi og lokaeldun hádegismáltíða, undirbúningi og afgreiðslu máltíða og frágangi ásamt þrifum i eldhúsi. Starfsmenn mötuneyta panta inn af pöntunarvef Skólamatar og senda inn dagsskýrslur.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Áhugi á mat og matargerð er mikill kostur
- Reynsla úr sambærilegu starfi æskileg.
- Menntun sem nýtist í starfi kostur.
- Góð íslenskukunnátta skilyrði.
- Jákvæðni, snyrtimennska, stundvísi og sjálfstæð vinnubrögð.
- Geta til þess að vinna undir álagi.
Fríðindi í starfi
- Vinnufatnaður.
- Íþróttastyrkur.
- Samgöngustyrkur.
- Fjölskylduvænn vinnustaður.
Auglýsing birt13. ágúst 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Breiðumýri, 225 Garðabæ
Starfstegund
Hæfni
JákvæðniSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagStundvísiSveigjanleiki
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Viltu vinna fyrir mikilvægasta fólkið?
Skólamatur

Kitchen Assistant – Central Kitchen (Mon–Fri, Morning Shift)
Tokyo Veitingar Central Kitchen

Verslunarstjóri Huppu í Garðabæ
Ísbúð Huppu

Starfsmaður við afgreiðslu / aðstoð
Sjúkraþjálfarinn ehf.

Starfsmaður í eldhús
Matkráin

Chef | Full-time | Long-term contract
Hótel Dyrhólaey

Hlutastörf í hlaðdeild á Keflavíkurflugvelli
Airport Associates

Sölufulltrúi í varahlutaverslun
Klettur - sala og þjónusta ehf

Matreiðslumaður / vaktstjóri í eldhúsi á Brasserie Aski
Brasserie Askur

Starfsmaður í blómaheildverslun
Samasem ehf

Bókavörður á Djúpavogi
Bókasafn Múlaþings

Kvenkyns starfsmaður íþróttamiðstöðvar Norðfjarðar
Fjarðabyggð