Álfasaga ehf
Álfasaga ehf
Álfasaga ehf

Starfsmaður í Matvælaframleiðslu

Álfasaga ehf. leitar að öflugum, jákvæðum og áreiðanlegum einstaklingi til starfa við matvælaframleiðslu í Hafnarfirði.

Um er að ræða fullt starf í dagvinnu og hentar starfið vel einstaklingi sem er stundvís, samviskusamur og á auðvelt með að vinna bæði sjálfstætt og með öðrum.

Staðsetning: Dalshraun 7, 220 Hafnarfjörður
Starfshlutfall: 100%
Upphaf starfs: Sem fyrst

Helstu verkefni

  • Samsetning og undirbúningur matvæla
  • Að tryggja hreinlæti og gæði á vinnusvæði
  • Almenn störf við matvælaframleiðslu
  • Önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur

  • Reynsla af matvælaframleiðslu er kostur en ekki skilyrði
  • Jákvætt viðmót og góð vinnubrögð
  • Ábyrgð, stundvísi og áreiðanleiki
  • Geta til að vinna bæði sjálfstætt og sem hluti af teymi

Vinnutími

  • Dagvinna frá kl. 08:00–16:30
  • Fimm vinnudagar í viku
  • Unnið er samkvæmt vaktaplani á tímabilinu sunnudag til föstudag
  • Tveir frídagar í viku

Við bjóðum

Hjá Álfasögu er gott og fjölbreytt vinnuumhverfi þar sem lögð er áhersla á góðan starfsanda og samvinnu. Hjá okkur starfar skemmtilegur hópur fólks af mörgum þjóðernum og við tökum vel á móti nýju fólki í hópinn.

Auglýsing birt13. ágúst 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Dalshraun 7, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar