
Álfasaga ehf
Hjá Álfasögu starfar öflugur og samhentur hópur sem ætlar sér stóra hluti á næstu árum. Álfasaga er móðurfélag nokkurra fyrirtækja sem eiga það öll sameiginlegt að framleiða gæða matvöru sem seldar eru á neytendamarkaði, til stóreldhúsa og til flugfélaga. Dótturfyritæki fyrirtækisins eru Dagný & Co., Móðir Náttúra, Kræsingar og NúllVes, auk þess að sjá um innflutning á fjölda vörumerkja.

Matreiðslumaður óskast í dagvinnu
Matreiðslumaður / kokkur óskast í dagvinnu.
Álfasaga ehf. leitar að metnaðarfullum og áreiðanlegum matreiðslumanni eða matartækni til framtíðarstarfa.
Um er að ræða fjölbreytt starf við matreiðslu og matvælaframleiðslu þar sem reynir á sjálfstæð vinnubrögð, skipulag og fagmennsku. Við leitum að einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á matreiðslu, er snyrtilegur og stundvís og hefur gaman af því að takast á við fjölbreytt verkefni.
Vinnutími er frá kl. 8:00–16:30 alla virka daga og annan hvern sunnudag.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Undirbúningur, skurður og skipulag fyrir línuframleiðslu
- Matreiðsla fyrir mötuneyti samkvæmt matseðlum
- Eftirlit með því að gæða- og hreinlætiskröfum sé fylgt
- Matreiðsla og undirbúningur fyrir sérpantanir, svo sem fyrir einkaflug, veislur og aðra viðburði
- Almenn störf og aðstoð í eldhúsi
- Önnur tilfallandi verkefni tengd starfseminni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun í matartækni, matreiðslu eða sambærileg menntun
- Reynsla af matreiðslu og/eða störfum í matvælaiðnaði
- Góð enskukunnátta
- Þekking á gæða- og hreinlætiskröfum í matvælaframleiðslu
- Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
- Stundvísi, snyrtimennska og jákvætt viðmót
- Hæfni til að takast á við fjölbreytt verkefni og aðlagast breytingum
- Hreint sakavottorð
Auglýsing birt12. ágúst 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Dalshraun 7, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Viltu vinna fyrir mikilvægasta fólkið?
Skólamatur

Kitchen Assistant – Central Kitchen (Mon–Fri, Morning Shift)
Tokyo Veitingar Central Kitchen

Starfsmaður í eldhús
Matkráin

Chef | Full-time | Long-term contract
Hótel Dyrhólaey

Matreiðslumaður / vaktstjóri í eldhúsi á Brasserie Aski
Brasserie Askur

VISS, vinnu og hæfingarstöð á Selfossi óskar eftir aðstoðarmatráð
Sveitarfélagið Árborg

Starf í framleiðslueldhúsi
Kjötkompaní ehf.

Matreiðslumaður / Kitchen staff
Apotek kitchen + bar

Aðstoð í eldhúsi
Aðföng

Chef / Cook / Kokkur
North West Restaurant & Guesthouse

Vanur eldhússtarfsmaður – Experienced kitchen worker
Stúdentakjallarinn

Starfsmaður í mötuneyti (50% hlutastarf)
Sælkeramatur ehf.