Kjötkompaní ehf.
Kjötkompaní ehf.

Kjötkompaní - framtíðarstarf í verslunum

Kjötkompaní leitar að metnaðarfullum aðila í framtíðarstarf í verslunum sínum.
Í boði er starf í líflegu og skemmtilegu starfsumhverfi þar sem miklir möguleikar eru fyrir réttan aðila að vaxa og þróast í leiðtogahlutverk innan fyrirtækisins.
Viðkomandi þarf að hafa brennandi áhuga á að veita góða þjónustu, vera söludrifinn og hafa jákvætt hugarfar.
Um er að ræða fullt starf sem felur í sér sölu og þjónustu við viðskiptavini, pöntun á aðföngum, framsetningu á vörum auk annarra verslunarstarfa.

Hæfniskröfur:

• Jákvætt og glaðlegt viðmót

• Góð samskiptahæfni

• Afburða þjónustulund

• Góð íslenskukunnátta

· Áhugi á mat og matargerð er góður kostur

• Kostur ef viðkomandi hefur reynslu af sölu- og þjónustustörfum

Við hvetjum öll áhugasöm til að sækja um starfið.

Auglýsing birt7. ágúst 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Grandagarður 29, 101 Reykjavík
Dalshraun 13, 220 Hafnarfjörður
Bíldshöfði 18, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Hreint sakavottorð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar