Byko
Byko
Byko

Hlutastarf í BYKO Breidd

Við hjá BYKO erum að leita að öflugum einstaklingi til að starfa í hlutastarfi í verslun okkar Byko Breidd. Ef þú ert framsækinn og faglegur einstaklingur með gleðina í fyrirrúmi þá erum við að leita að þér.
Starfið hentar mjög vel með skóla og kjörið fyrir þau sem eru að læra iðngreinar.
Vinnutími er breytilegur en almennt á eftirfarandi tímum:

  • Virkir dagar: 16:00-18:30
  • Laugardagar: 10:00-18:00
  • Sunnudagar: 11:00-17:00


Við leitum að starfsmanni með:

  • Áhuga á sölu- og þjónustu
  • Ríka þjónustulund
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Stundvísi
  • Þekkingu á gólfefnum, hreinlætistækjum, rafmagni og/eða ljósum, kostur
  • Íslenskukunnáttu, skilyrði


Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Þjónusta, sala og ráðgjöf til viðskiptavina
  • Áfyllingar
  • Birgðaleiðréttingar
  • Önnur tilfallandi verkefni


Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum og á öllum aldri til að sækja um.
BYKO hefur sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavina í framkvæmdum og fegrun heimilisins. Í þeirri vinnu höfum við gildin okkar að leiðarljósi; fagmennska, framsækni og gleði.

Auglýsing birt4. ágúst 2026
Umsóknarfrestur23. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Skemmuvegur 4, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar