

Starfsmaður í verslun The North Face Hafnartorgi
Við hjá The North Face leitum að sölufulltrúa í hlutastarf í verslun TNF á Hafnartorgi. Um er að ræða spennandi starf í verslun með alþjóðlegt vörumerki þar sem útivist og tíska blandast saman á skemmtilega hátt. Starfið felst í sölu og ráðgjöf til viðskiptavina ásamt tilfallandi verkefnum í verslun.
Við eru að leita af starfsmanni sem getur unnið virka daga og um helgar. Um er að ræða hlutastarf.
Vaktirnar eru á virkum dögum frá 11/12-18 og aðra hverja helgar eða eftir samkomulagi.
Hæfniskröfur
- Rík þjónustulund, dugnaður og jákvætt viðmót.
- Áhugi á fatnaði og tísku.
- Áhugi á útivist og hreyfingu.
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta.
- Reynsla af sölu- og þjónustu er kostur.
- Hreint sakarvottorð.
Gott er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
The North Face er eitt stærsta og vinsælasta útivistarmerki heims sem leggur mikið uppúr gæðum í sinni framleiðslu. Vörumerkið hefur náð einstökum árangri í að sameina götutísku og útivist og er leiðandi á þeim vettvangi. Verslunin á Hafnartorgi er staðsett í hjarta Reykjavíkur í alþjóðlegu og lifandi umhverfi.
- Sala og þjónusta í verslun
- Ráðgjöf til viðskiptavina
- Önnur almenn verslunarstörf
Enska
Íslenska










