

Lyfja Reyðarfirði - þjónusta og ráðgjöf
Við leitum að jákvæðum og sjálfstæðum einstaklingi með ríka þjónustulund í sölu og afgreiðslu í Lyfju Reyðarfirði. Starfið felst í að veita almenna ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum og að tryggja góða þjónustuupplifun.
Hlutverk og ábyrgð:
- Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum
- Þjónusta og almenn afgreiðslustörf
- Áfyllingar í verslun
- Umsjón með lyfjatiltekt
- Afhending lyfja gegn lyfseðli
Hvaða hæfni þarft þú að hafa?
- Ríka þjónustulund og gott viðmót
- Áhuga á mannlegum samskiptum
- Áhuga á heilsu og vellíðan
- Ágæt íslensku- og enskukunnátta
- Reynsla af verslunarstörfum er kostur
- Reynsla af störfum í apóteki er kostur
Um framtíðarstarf er að ræða og vinnutíminn er á opnunartíma verslunar eða samkvæmt samkomulagi.
Hvers vegna Lyfja?
Lyfja er leiðandi fyrirtæki í íslenskri heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að auka lífsgæði og efla heilsu. Við rekum 42 verslanir hringinn í kringum landið auk Lyfju Heyrnar og lyfjaskömmtunar. Hjá okkur starfar öflugur hópur heilbrigðismenntaðs og sérþjálfaðs starfsfólks sem styður við viðskiptavini í þeirra heilsueflingu, vinnur að vellíðan og tryggir lyfjaöryggi. Við leggjum áherslu á faglega og hlýlega þjónustu og stöðuga nýsköpun.
Við leggjum okkur fram um að skapa vinnuumhverfi þar sem starfsfólk upplifir jákvæðan starfsanda, fær tækifæri til að þróast í starfi og nýtir hæfileika sína til fulls. Við bjóðum upp á öfluga fræðslu og leggjum mikla áherslu á gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Starfsfólk Lyfju nýtur góðra kjara á vörum og þjónustu hjá Lyfju, ELKO, Krónunni og N1, sem öll eru hluti af Festi hf.
Vinnutími er 11-18 virka daga eða eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg Jónsdóttir, Lyfsali Lyfju á Neskaupstað í síma 477 1118 | [email protected]
Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Íslenska
Enska










