Lyfja
Lyfja
Lyfja

Lyfjaútibú Hvammstanga - þjónusta og ráðgjöf

Við leitum að jákvæðum og sjálfstæðum einstaklingi með ríka þjónustulund í sölu og afgreiðslu í verslun Lyfju á Hvammstanga. Starfið felst í að veita almenna ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum og að tryggja góða þjónustuupplifun.

Hlutverk og ábyrgð:

  • Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum
  • Þjónusta og almenn afgreiðlustörf
  • Áfyllingar í verslun
  • Afgreiðsla lausasölulyfja

Hvaða hæfni þarft þú að hafa?

  • Ríka þjónustulund og gott viðmót
  • Áhuga á mannlegum samskiptum
  • Áhuga á heilsu og vellíðan
  • Reynslu af verslunarstörfum

Starfið:

Um hlutastarf er að ræða og vinnutími er frá 12:00-16:00 alla virka daga.

Umsækjandi þarf að hafa ágæta íslensku- og enskukunnáttu og hafa náð 18 ára aldri.

Hvers vegna Lyfja?

Lyfja er leiðandi fyrirtæki í íslenskri heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að auka lífsgæði og efla heilsu. Við rekum 42 verslanir hringinn í kringum landið auk Lyfju Heyrnar og lyfjaskömmtunar. Hjá okkur starfar öflugur hópur heilbrigðismenntaðs og sérþjálfaðs starfsfólks sem styður við viðskiptavini í þeirra heilsueflingu, vinnur að vellíðan og tryggir lyfjaöryggi. Við leggjum áherslu á faglega og hlýlega þjónustu og stöðuga nýsköpun.

Við leggjum okkur fram um að skapa vinnuumhverfi þar sem starfsfólk upplifir jákvæðan starfsanda, fær tækifæri til að þróast í starfi og nýtir hæfileika sína til fulls. Við bjóðum upp á öfluga fræðslu og leggjum mikla áherslu á gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Starfsfólk Lyfju nýtur góðra kjara á vörum og þjónustu hjá ELKO, Krónunni, Lyfju og N1, sem öll eru hluti af Festi hf.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Friðþjófur Már Sigurðsson, lyfsali í Lyfju Sauðárkróki í síma 543-5700 og á [email protected]

Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.

Auglýsing birt20. ágúst 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Nestún 1, 530 Hvammstangi
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar