NPA miðstöðin
NPA miðstöðin
NPA miðstöðin

Óska eftir aðstoðarkonu í utanlandsferð í ágúst og hlutastarf

Ég er kona á besta aldri, bý í Kópavogi og er að leita að aðstoðarkonu til starfa í NPA þjónustu. Ég hef gaman af lífinu og er úti um allt að gera alls konar hluti eins og að fara í sund og á menningarviðburði. Ég er í leiklist, sinni fjölbreyttum góðgerðarstörfum og sjálfboðaliðastörfum svo eitthvað sé nefnt.

Ég óska eftir aðstoðarkonu í hlutastarf á 1-2 vaktir í viku og er á leið til útlanda í lok ágúst og vantar trausta og frábæra aðstoðarkonu með mér í þá ferð. Ferðin verður 20. ágúst - 24. ágúst og 12 tíma vaktir. Viðkomandi þarf því að geta hafið störf sem allra fyrst.

Ég er hreyfihömluð og nota hjólastól. Ég er að leita að aðstoðarkonu sem getur aðstoðað mig eftir þörfum í mínu daglega lífi m.a. við útréttingar, heimilisstörf, matreiðslu, sundferðir, og annað sem ég tek mér fyrir hendur. Hlutverk aðstoðarkonu er í stuttu máli að vera mín hægri hönd í verkefnum dagsins.
Athugið. Ég er með kött á heimilinu og þarf aðstoð við að sinna honum.

Ef þú hefur gaman af lífinu, getur tekið leiðsögn og átt auðvelt með mannleg samskipti þá gæti ég verið að leita að þér. Ekki er verra ef þú ert líka traust, skipulögð og samviskusöm.
Mikilvægt er að geta hafið störf sem fyrst.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Kvenkyns
  • 25 ára eða eldri
  • Tóbakslaus
  • Læs og talandi á íslensku
  • Sveigjanleg, áreiðanleg og stundvís
  • Bílpróf
  • Getur sinnt helstu heimilisstörfum og garðvinnu
  • Hreint sakavottorð

Laun eru samkvæmt kjarasamningi NPA miðstöðvarinnar og Eflingar.
Nánar um launakjör aðstoðarfólks hér.

Starfið byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf en hægt er að lesa nánar um hugmyndafræðina og notendastýrða persónulega aðstoð á vef NPA miðstöðvarinnar www.npa.is.

Auglýsing birt13. ágúst 2026
Umsóknarfrestur18. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Urðarhvarf 8, 203 Kópavogur
Starfstegund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar