
Framkvæmdastjóri Rafíþróttasambands Íslands
Rafíþróttasamband Íslands (RÍSÍ) leitar að öflugum einstaklingi í starf framkvæmdastjóra sambandsins.
RÍSÍ hefur vaxið hratt undanfarin ár og starfsemi sambandsins er í dag fjölbreytt. Starfið er metnaðarfullt og framkvæmdastjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri sambandsins og leiðir áframhaldandi uppbyggingu þess í samstarfi við stjórn, starfsfólk, aðildarfélög og samstarfsaðila.
Um er að ræða fjölbreytt stjórnunarstarf þar sem reynir á frumkvæði, sjálfstæði og getu til að koma verkefnum frá hugmynd í framkvæmd.
Um fullt starf er að ræða.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem umsækjandi gerir grein fyrir reynslu sinni, hæfni og áhuga á starfinu.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar veitir Jökull Jóhannsson, framkvæmdastjóri RÍSÍ, í gegnum [email protected].
Umsóknarfrestur er til og með 25. september nk.
- Dagleg stjórnun og rekstur Rafíþróttasambands Íslands.
- Fjármál, fjármögnun og eftirfylgni með rekstraráætlunum sambandsins.
- Öflun styrkja og samstarfssamninga ásamt samskiptum við styrktaraðila og samstarfsaðila.
- Stjórnun starfsfólks og verkefna sambandsins.
- Samskipti við stjórn, aðildarfélög, stjórnvöld, ÍSÍ og aðra hagaðila.
- Áframhaldandi uppbygging rafíþrótta á Íslandi og þróun nýrra verkefna og tekjustoða.
- Yfirumsjón með innlendum og alþjóðlegum verkefnum sambandsins.
- Hefur reynslu af stjórnun, rekstri, verkefnastjórnun eða sambærilegum störfum.
- Er sjálfstæður, skipulagður og lausnamiðaður og á auðvelt með að taka ábyrgð.
- Hefur góða samskipta- og leiðtogahæfni.
- Hefur hæfni þegar kemur að sölumálum.
- Hefur gott viðskiptavit og skilning á fjármálum og rekstri.
- Getur byggt upp og viðhaldið sterkum tengslum við ólíka samstarfsaðila.
- Hefur mjög góða íslensku- og enskukunnáttu.
- Hefur áhuga á íþróttum, rafíþróttum, félagsstarfi eða uppbyggingu nýrrar starfsemi. Þekking á rafíþróttum er kostur en ekki skilyrði.
RÍSÍ býður upp á einstakt tækifæri til að leiða áfram uppbyggingu ungs og ört vaxandi íþróttasambands. Starfið býður upp á mikið sjálfstæði, fjölbreytt verkefni og tækifæri til að hafa bein áhrif á þróun rafíþrótta á Íslandi.
Enska
Íslenska










