Sveitarfélagið Hornafjörður
Sveitarfélagið Hornafjörður
Sveitarfélagið Hornafjörður

Leiðtogi í umhverfis- og skipulagsmálum

Ert þú framsýnn og skipulagður leiðtogi? Sveitarfélagið Hornafjörður leitar að öflugum einstaklingi í starf skipulagsfulltrúa, sem jafnframt gegnir veigamiklu hlutverki sem deildarstjóri umhverfis- og skipulagsdeildar.

Hér er á ferðinni spennandi lykilhlutverk þar sem þú færð tækifæri til að leiða mikilvæga þróun og taka beinan þátt í uppbyggingu og mótun á sjálfbærri og blómlegri framtíð samfélagsins á þessum einstaka stað. Ertu tilbúin(n) að takast á við krefjandi en jafnframt afar gefandi verkefni?

Starfið er 100% og staðbundið í Hornafirði, í nánd við stórbrotið náttúrufar. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með öflugu teymi sem samanstendur af umhverfisfulltrúa og verkefnastjóra umhverfis- og skipulagsmála.
  • Yfirumsjón með öllum skipulagsmálum sveitarfélagsins, þar á meðal gerð og endurskoðun aðal- og deiliskipulags í samræmi við sýn sveitarfélagsins.
  • Undirbúningur mála fyrir umhverfis- og skipulagsnefnd, útgáfa framkvæmdaleyfa og túlkun skipulagsskilmála.
  • Umsjón með landupplýsingum, kortagrunnum og úthlutun lóða, ásamt utanumhaldi landeigna.
  • Gerð umsagna um laga- og reglugerðarbreytingar og eftirlit með skipulagsmálum aðliggjandi sveitarfélaga.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi er skilyrði.
  • Umsækjandi þarf að uppfylla hæfisskilyrði 5. mgr. 7. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. 
  • Reynsla af skipulagsmálum er nauðsynleg. Reynsla af opinberri stjórnsýslu og mannaforráðum er stór kostur.
  • Jákvæðni, lipurð í samskiptum, rík þjónustulund og hæfni til að miðla flóknum upplýsingum á skýran hátt.
  • Drifkraftur, sjálfstæð vinnubrögð og mjög góð færni í íslensku.
  • Góð tölvukunnátta og þekking á upplýsingatækni sem tengist starfssviðinu.
Auglýsing birt11. september 2026
Umsóknarfrestur27. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hafnarbraut 27, 780 Höfn í Hornafirði
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.NákvæmniPathCreated with Sketch.Opinber stjórnsýslaPathCreated with Sketch.Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar