
Akraneskaupstaður
Akranes er stærsta sveitarfélag Vesturlands með rúmlega 8.500 íbúa.
Hjá Akraneskaupstað starfa tæplega 800 manns í 20 stofnunum. Bærinn rekur tvo grunnskóla, fjóra leikskóla, frístundastörf, búsetukjarna, miðlæga skrifstofu, tónlistarskóla, bókasafn, slökkvilið og byggðasafn svo fátt eitt sé nefnt. Akranes er framsækið sveitarfélag sem hefur jákvæðni, metnað og víðsýni að leiðarljósi í þjónustu og uppbyggingu sveitarfélagsins.
Akranes er einstaklega fjölskylduvænt bæjarfélag þar sem gott er að búa og ala upp börn. Bærinn er bæði heilsueflandi og barnvænt samfélag og framfylgir stefnu um slíkt. Það sem einkennir Akranes er flatlendi þess og er því mjög þægilegt að ganga og hjóla um bæinn. Auk þess eru möguleikar til útivistar fjölbreyttir og stutt í ósnortna náttúru.

Bókari hjá Akraneskaupstað
Við leitum að bókara sem hefur metnað til að ná árangri, vinnur sjálfstætt og býr yfir góðri samskiptahæfni. Ef þú hefur gaman af því að vinna með fólki og vilt taka þátt í að skapa jákvæð áhrif í öflugu teymi, þá er þetta starf fyrir þig.
Um fullt starf er að ræða en starfið heyrir undir fjármála- og innkaupadeild. Deildin hefur í höndum fjárstýringu, reikningshald, yfirumsjón með fjárhagsáætlun, lánastýringu, umsjón með gjaldskrám, innkaupamál og fleira.
Fjárhagskerfi Akraneskaupstaðar er Microsoft Dynamics 365 Business Central.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Dagleg umsjón með vinnslu á bókhaldi Akraneskaupstaðar og stofnana þess
- Dagleg umsjón með vinnslu bókhalds fyrir Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimili
- Dagleg umsjón með innlestri rafrænna reikninga
- Afstemmingar á bankareikningum og efnahagsreikningum
- Tekur þátt í uppgjörsvinnslu og ársreikningagerð
- Upplýsingagjöf til lánardrottna, stjórnenda, forstöðumanna stofnana og annarra starfsmanna
- Virk þátttaka og samstarf innan fjármála- og þjónustusviðs og annarra sviða
Menntunar- og hæfniskröfur
- Stúdentspróf eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af sambærilegu starfi
- Nám til viðurkennds bókara er kostur
- Góð tölvukunnátta er skilyrði
- Góð þekking og reynsla af Business Central (BC) er kostur
- Samskiptahæfni, jákvætt viðhorf og lausnamiðuð hugsun
- Rík þjónustulund, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
- Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
- Góð íslenskukunnátta er nauðsynleg
Fríðindi í starfi
- Góður og sveigjanlegur vinnustaður
- 36 stunda vinnuvika
- Heilsueflingarstyrkur
Auglýsing birt10. september 2026
Umsóknarfrestur23. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Dalbraut 4, 300 Akranes
Starfstegund
Hæfni
AfstemmingFrumkvæðiMetnaðurMicrosoft Dynamics 365 Business CentralSamviskusemi
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Sérfræðingur í bókhaldi hjá ECIT á Blönduósi.
ECIT

Origo leitar að reynsluboltum í Business Central
Origo ehf.

Sérfræðingur í rannsóknaþjónustu
Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands

Bókari og skrifstofufulltrúi
Akraborg ehf.

Þjónustufulltrúi á skrifstofu á Seyðisfirði
Mannauðs- og þjónustusvið

Sérfræðingur Þjónustumiðju
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Skrifstofu- og gæðastjóri
Raftákn

Vanur bókari óskast
Tölvutek

Verkefna- og rekstrarfulltrúi
Rennsli ehf.

Bókhald / Fjármál
Mögnum

Blönduós - Starfsmaður í afgreiðslu og dreifingu
Pósturinn

Fjármála- og rekstrarstjóri
Dropp