
TVG-Zimsen
Fulltrúi í þjónustu við netverslanir
Við leitum að jákvæðum og þjónustuliprum einstaklingi til liðs við öflugt teymi okkar í þjónustu við netverslanir hjá TVG-Zimsen.
Starfið er fjölbreytt og hentar vel einstaklingi sem hefur gaman af samskiptum, er lausnamiðaður og á auðvelt með að halda utan um mörg verkefni í einu.
Vinnutími er mánudaga til fimmtudaga kl. 08:00 - 16:00 og föstudaga kl. 08:00 - 15:15. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þjónusta og samskipti við viðskiptavini
- Samskipti við innlenda og erlenda samstarfsaðila
- Upplýsingagjöf og ráðgjöf til viðskiptavina
- Skráning og eftirfylgni með stöðu sendinga
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Framúrskarandi samskiptahæfni og þjónustulund
- Skipulagshæfni og geta til að sinna mörgum verkefnum í einu
- Heiðarleiki, stundvísi og metnaður
- Góð almenn tölvukunnátta
- Gott vald á íslensku og ensku, bæði í töluðu og rituðu máli
Við bjóðum
- Fjölbreytt verkefni og góðan starfsanda í samhentu teymi
- Öflugt starfsmannafélag sem stendur fyrir fjölbreyttum viðburðum og rekur orlofshús víðs vegar um landið
- Heilsu- og hamingjupakka sem inniheldur samgöngustyrk og styrki vegna líkamsræktar, sálfræðiþjónustu og fleira
- Gott mötuneyti og niðurgreiddan mat fyrir starfsfólk
Auglýsing birt30. október 2026
Umsóknarfrestur8. nóvember 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Korngarðar 2, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
SamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Þjónustufulltrúi
Gæðabakstur

Innkaup og þjónusta
Rubix Ísland ehf

Þjónustufulltrúi
Atlantsolía

Verkefnastjóri
KÓRÍS - Kórasamband Íslands

Sérfræðingur á Greiðslustofu atvinnuleysistrygginga á Skagaströnd
Vinnumálastofnun

Sérfæðingur í bókhaldsdeild
Eir, Skjól og Hamrar hjúkrunarheimili

Bókari og skrifstofufulltrúi
Akraborg ehf.

Móttöku- og skrifstofustarf
Hagvangur

Heilbrigðisritari/ skrifstofumaður á bæklunarskurðdeild AB5 Fossvogi
Landspítali

Sérfræðingur í rannsóknaþjónustu
Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands

Aðstoðamaður á dýraspítala
Dýralæknar Sandhólaferju ehf.

Starfsmaður í afgreiðslu
Vélanaust