Festi
Festi
Festi

Aðalgjaldkeri hjá Festi

Við leitum að öflugum, ábyrgum og lausnamiðuðum einstaklingi í starf aðalgjaldkera hjá Festi. Aðalgjaldkeri gegnir lykilhlutverki í daglegri fjárstýringu samstæðunnar og ber faglega ábyrgð á framkvæmd greiðslna, bankaviðskiptum, lausafjáreftirliti og samræmingu gjaldkerastarfa. Starfið felur jafnframt í sér virka þátttöku í þróun fjármálaferla, sjálfvirknivæðingu og eflingu innra eftirlits. Um er að ræða fjölbreytt og ábyrgðarmikið framtíðarstarf í öflugu starfsumhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Fagleg umsjón og samræming daglegra gjaldkerastarfa og greiðslna.
  • Umsjón með bankaviðskiptum, bankareikningum og greiðsluflæði.
  • Daglegt eftirlit með lausafjárstöðu og stuðningur við áætlanagerð og stýringu lausafjár.
  • Tryggja að greiðsluferlar, samþykktir og framkvæmd séu í samræmi við skilgreindar heimildir, reglur og innra eftirlit.
  • Eftirfylgni með rekjanleika greiðslna og öðrum lykilstýringum í gjaldkeraferlum.
  • Samskipti við banka, fjármálafyrirtæki og aðra þjónustuaðila.
  • Upplýsingagjöf, greiningar og stuðningur við fjármálateymi og félög innan samstæðunnar.
  • Þátttaka í þróun og innleiðingu umbóta, sjálfvirknivæðingar og einföldunar á fjárstýringar- og greiðsluferlum.
  • Þátttaka í þróun verklags og stýringa sem stuðla að öruggri og skilvirkri meðhöndlun fjármuna.
  • Önnur verkefni á sviði fjárstýringar eftir þörfum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af gjaldkerastörfum, fjárstýringu, bókhaldi eða sambærilegum fjármálaverkefnum.
  • Reynsla af ábyrgð á greiðsluferlum, bankaviðskiptum eða lausafjárstýringu er kostur.
  • Töluleg- og greiningarfærni ásamt nákvæmum og öguðum vinnubrögðum.
  • Góð Excel-kunnátta og almennt sterk kerfis- og tæknifærni.
  • Skilningur á innra eftirliti, verkaskiptingu og rekjanleika í fjármálaferlum er kostur.
  • Frumkvæði, sjálfstæði og hæfni til að forgangsraða og fylgja verkefnum eftir.
  • Rík þjónustulund og góð samskipta- og samstarfshæfni.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta.
  • Menntun á sviði viðskipta, fjármála, reikningshalds eða önnur menntun sem nýtist í starfi er kostur.
Fríðindi í starfi

Festi leggur áherslu á að skapa spennandi og líflegt starfsumhverfi þar sem hæfileikar einstaklingsins fá að njóta sín. Starfsfólki er veittur sveigjanleiki í starfi og lögð er áhersla á jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Velferð starfsfólks er í fyrirrúmi og er ýmis konar heilsueflandi þjónusta í boði í velferðarpakka félagsins. Starfsfólk fær góð kjör á vörum og þjónustu hjá ELKO, Krónunni, Lyfju og N1.

Auglýsing birt3. nóvember 2026
Umsóknarfrestur23. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Dalvegur 10-14, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tæknikunnáttaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.GreiningarfærniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Microsoft ExcelPathCreated with Sketch.NákvæmniPathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.Samskipti með tölvupóstiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SjálfvirknivæðingPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar