

Aðstoðarrekstrarstjóri
Við hjá Reykjavík Napólí ehf leitum að öflugum og drífandi aðstoðarrekstrarstjóra.
Reykjavík Napólí ehf rekur Flatey Pizza, NEÓ Pizza og Gaeta Gelato á höfuðborgarsvæðinu og Selfossi.
Starfið er fjölbreytt og hentar vel nýútskrifuðum eða einstaklingi snemma á sínum starfsferli sem hefur reynslu úr veitinga- eða þjónustugeiranum og vill taka næsta skref í átt að aukinni ábyrgð og stjórnun.
• Eftirfylgni með daglegum rekstri staðanna
• Samskipti og eftirfylgni með vaktstjórum og starfsfólki
• Vaktaplön og mönnun
• Eftirfylgni með pöntunum og birgðamálum
• Hópabókanir og fyrirspurnir
• Þátttaka í ráðningum og þjálfun starfsfólks
• Eftirfylgni með verkferlum og gæðum
• Önnur tilfallandi verkefni sem tengjast rekstri fyrirtækisins
• Reynsla úr veitinga-, þjónustu- eða sambærilegum rekstri
• Áhugi á stjórnun og vilji til að taka að sér aukna ábyrgð
• Drifkraftur, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
• Góð samskiptafærni og þjónustulund
• Lausnamiðuð hugsun og hæfni til að forgangsraða
Íslenska
Enska










