UMFÍ
UMFÍ
UMFÍ

Verkefnastjóri í Skólabúðum UMFÍ

Skólabúðirnar að Reykjum í Hrútafirði, sem starfræktar eru af UMFÍ, óska eftir að ráða metnaðarfullan og skipulagðan verkefnastjóra til starfa.

Verkefnastjóri ber ábyrgð á skipulagi og samskiptum við skóla vegna komu hópa, hefur umsjón með dagskrá búðanna og leigu til annarra hópa og gætir þess að aðstaða og öryggi séu í lagi fyrir starfsemina. Um er að ræða fjölbreytt og gefandi starf sem reynir á skipulagshæfni, frumkvæði og góða samskiptahæfni.

Helstu verkefni og ábyrgð

•     Öll samskipti við kennara þeirra hópa sem koma í Skólabúðirnar.

•     Skipulag og röðun skóla fyrir næsta skólaár, þ.m.t. útsending og móttaka umsóknarforma.

•     Yfirumsjón með sumar og helgarleigu, þ.m.t. bókanir og vaktaskipulag starfsfólks.

•     Umsjón með tímum í dagskrá, í samstarfi við samstarfsfólk og yfirmann.

•     Eftirlit með því að hús og sundlaug séu í lagi áður en hópar koma á staðinn.

•     Árleg skýrslugjöf um starfsemi Skólabúðanna.

Menntunar- og hæfniskröfur

•     Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi, t.d. á sviði stjórnunar, verkefnisstjórnunar, uppeldis-, félags- eða tómstundastarfa.

•     Reynsla af skipulagsvinnu og verkefnastjórnun er æskileg.

•     Leiðtogahæfni og umbótamiðuð hugsun

•     Jákvætt hugarfar og framúrskarandi hæfni í samskiptum og teymisvinnu

•     Sjálfstæði í vinnubrögðum og hæfni til að taka ákvarðanir.

•     Skipulagshæfni og nákvæmni, sérstaklega við röðun skóla og vaktaplön.

•     Frumkvæði til að afla sér þekkingar og miðla henni áfram til samstarfsfólks.

Umsóknir

Umsóknarfrestur er til og með 15. september. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í síðasta lagi 1.janúar 2026.

Nánari upplýsingar veita:

Sigurður Guðmundsson, forstöðumaður skólabúða UMFÍ

Sími: 861 3379

Netfang: [email protected]

Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ

Netfang: [email protected]

Öllum umsóknum verður svarað og fyllsta trúnaðar gætt.

Auglýsing birt31. ágúst 2026
Umsóknarfrestur15. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Skólabúðir UMFÍ á Reykjum í Hrútafirði
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar