

Framkvæmdastjóri Rent A Party
Framkvæmdastjóri Rent A Party
Við erum að leita að kraftmiklum, skipulögðum og þjónustumiðuðum einstaklingi til að gegna starfi framkvæmdastjóra hjá Rent A Party.
Framkvæmdastjóri hefur yfirumsjón og ber ábyrgð á daglegum rekstri fyrirtækisins.
Starfið felst m.a. í því að skipuleggja og stýra afhendingum og uppsetningum á búnaði, ásamt því að hafa umsjón með starfsfólki. Framkvæmdastjóri er ábyrgur fyrir ástandi leigubúnaðar og sér til þess að allur búnaður sé í fullkomnu standi.
Hann ber jafnframt ábyrgð á að öllum gæðastöðlum sé fylgt eftir þegar kemur að þjónustu og samskiptum við viðskiptavini fyrirtækisins.
Um fullt starf er að ræða og þarf viðkomandi að geta verið nokkuð sveigjanlegur varðandi vinnutíma. Þar sem að verkefni á þessu sviði eru flest um helgar þarf að gera ráð fyrir mikilli helgarvinnu.
Menntunar- og hæfniskröfur:
-
Framúrskarandi skipulags- og leiðtogahæfni og sjálfstæð vinnubrögð.
-
Góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli.
-
Framúrskarandi þjónustulund og mikil hæfni í mannlegum samskiptum.
-
Almenn tæknikunnátta er nauðsynleg.
-
Góð tölvukunnátta s.s. Word, Excel, Canva, tölvupóstur o.fl.
-
Reynsla af stjórnunarstörfum er æskileg.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Umsóknir ásamt ferilskrá skal senda hér í gegnum ráðningarkerfi Alfreðs. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Um Rent A Party
Rent A Party sérhæfir sig í leigu á öllum þeim búnaði sem getur gert viðburði flottari, skemmtilegri og eftirminnilegri, ásamt smásölu á tilheyrandi vörum. Rent A Party leggur mjög mikla áherslu á að veita fyrsta flokks þjónustu.
Íslenska
Enska










