Stofnun atvinnuveganna
Stofnun atvinnuveganna
Stofnun atvinnuveganna

Framkvæmdastjóri fjármála og innviða

Stofnun atvinnuveganna (STAV) leitar að öflugum og framsýnum leiðtoga til að stýra sviði fjármála og innviða. Framkvæmdastjóri gegnir lykilhlutverki í uppbyggingu nýrrar stofnunar og tryggir traustan rekstur, öfluga innviði og markvissan stuðning við fagstarfið.

Sviðið ber ábyrgð á fjármálum og rekstri, mannauði og menningu, stafrænni þróun og umbótum, auk gæða og stjórnarhátta.

Leitað er að leiðtoga sem nær fólki með sér og hefur metnað til að byggja upp nútímalega og skilvirka starfsemi með markvissri nýtingu gagna, tækni og nýrra starfshátta til að bæta stjórnun og ákvarðanatöku.

Við leitum að fólki sem hefur metnað til að gera hlutina vel, þor til að hugsa á nýjan hátt og vilja til að taka þátt í að skapa framúrskarandi vinnustað.



Helstu verkefni og ábyrgð

  • Leiða stjórnendateymi og uppbyggingu sviðsins, samþætta starfsemi þess og bera ábyrgð á stefnumótun og árangri.
  • Bera ábyrgð á fjármálastjórn og uppbyggingu fjármála- og stjórnunarlíkans sem tengir fjármagn, verkefni, mannafla, rekstur og árangur.
  • Tryggja vandaðar stjórnendaupplýsingar, greiningar og árangursmælingar sem styðja við forgangsröðun og ákvarðanatöku.
  • Leiða þróun mannauðsmála og efla vinnustaðamenningu og hæfni starfsfólks í samstarfi við stjórnendur.
  • Leiða stafræna þróun og umbætur með áherslu á einfaldari ferla og markvissa nýtingu gagna, tækni og sjálfvirkni.
  • Tryggja trausta umgjörð um gæði, stjórnarhætti, upplýsingastjórn, persónuvernd, öryggi og áhættustýringu.
  • Bera ábyrgð á sameiginlegum rekstri, meðal annars innkaupum, samningum, húsnæði og starfsaðstöðu. Tryggja hagkvæma og skilvirka þjónustu sem mætir þörfum annarra eininga stofnunarinnar.
  • Taka virkan þátt í yfirstjórn, stefnumótun og forgangsröðun stofnunarinnar og veita forstjóra og öðrum stjórnendum ráðgjöf.
  • Efla samstarf þvert á stofnunina og leiða samskipti við ráðuneyti, stjórnvöld, þjónustuaðila og aðra hagaðila um málefni sviðsins.



Menntun og hæfniskröfur

  • Háskólapróf sem nýtist í starfi. Framhaldsmenntun er kostur.
  • Árangursrík stjórnunarreynsla og hæfni til að leiða og þróa stjórnendur.
  • Leiðtogahæfileikar, geta til að byggja upp öfluga liðsheild og leiða breytingar.
  • Farsæl reynsla af fjármálastjórnun og/eða stjórnun umfangsmikillar rekstrar-, mannauðs- og stoðþjónustu.
  • Reynsla af stefnumótun, forgangsröðun og innleiðingu breytinga.
  • Rík greiningarhæfni og reynsla af að nýta fjárhags- og rekstrarupplýsingar við ákvarðanatöku.
  • Þekking og reynsla af stafrænni þróun, umbótum og þróun ferla.
  • Skilningur á nýtingu gagna, tækni og sjálfvirkni í rekstri.
  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni, þjónustulund, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun.
  • Þekking og reynsla af fjármálum og rekstri í opinberri stjórnsýslu er kostur.
  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í ræðu og riti.



Um stofnun atvinnuveganna

Stofnun atvinnuveganna er sjálfstæð eftirlits- og stjórnsýslustofnun sem heyrir undir atvinnuvegaráðuneytið. Stofnun atvinnuveganna verður til við sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs, auk þess sem verkefni á sviði matvælaeftirlits heilbrigðisnefnda sveitarfélaga flytjast til stofnunarinnar.

Verkefnasvið stofnunarinnar er fjölbreytt og viðamikið. Stofnunin gegnir stjórnsýslu- og eftirlitshlutverki á grundvelli nýsamþykktra laga ásamt því að framfylgja alþjóðlegum skuldbindingum sem snúa að viðfangsefnum stofnunarinnar. Þá fer stofnunin meðal annars með verkefni á sviði sjávarútvegs, stjórnunarfiskveiða, lagareldis, lax- og silungsveiði, fiskræktar, matvæla, dýravelferðar og heilbrigðis dýra og plantna. Stofnun atvinnuveganna stuðlar að skilvirku opinberu eftirliti, veitir stjórnvöldum ráðgjöf og miðlar upplýsingumtil hagsmunaaðila og almennings. Markmiðið er að koma á fót öflugri stofnun sem veitir þjónustu í heimabyggð á sviði eftirlits með matvælum og sjálfbærri nýtingu auðlinda, þannig að bæði fagþekking og ákvarðanataka haldist í nærumhverfinu. Hjá Stofnun atvinnuveganna munu starfa um 200 manns.


Hvers vegna STAV?

Hjá STAV gefst einstakt tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu nýrrar ríkisstofnunar og hafa raunveruleg áhrif á þróun hennar.
Markmið okkar er að byggja upp nútímalega, skilvirka og trausta þjónustu- og eftirlitsstofnun þar sem fagmennska, samstarf og góð þjónusta eru í fyrirrúmi.



Umsóknarfrestur er til og með 4. desember 2026.

Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.

Umsækjendur skulu senda inn ferilskrá ásamt kynningarbréfi á íslensku. Þar skal gera grein fyrir þeirri þekkingu, reynslu og hæfni umsækjanda sem nýtist til að sinna starfinu í samræmi við hæfniskröfurnar í auglýsingunni.

Umsjón með starfinu hafa Auður Bjarnadóttir ([email protected]) og Hilmar Garðar Hjaltason ([email protected]).


Auglýsing birt23. nóvember 2026
Umsóknarfrestur4. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Reykjavík, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar