Alcoa Fjarðaál
Alcoa Fjarðaál
Alcoa Fjarðaál

Greiningasérfræðingur / Financial Analyst

Í þessu starfi, sem er unnið á starfstöð Fjarðaáls, sinnir þú kostnaðar- og fjármálagreiningu og skýrslugerð fyrir stjórnendur og styður við ákvarðanatöku í rekstri álversins. Þú greinir fjárhagsgögn til að veita skýra innsýn í reksturinn og styður við áætlanagerð og gerð spáa.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinna og skil á upplýsingum um framleiðslu og kostnað til að tryggja samræmi milli rekstrar- og bókhaldsupplýsinga.
  • Greina fjárhagsáætlanir og spár, útskýra frávik með skýrum hætti, greina tækifæri og fjárhagslegan árangur.
  • Gera ársáætlanir, ársfjórðungsspár, framleiðslu- og útflutningsspár og taka saman fjárhagsupplýsingar sem nýtast stjórnendum álversins við ákvarðanatöku.
  • Yfirfara framleiðsluskýrslur og fjárhagsfærslur, viðhalda nákvæmri skráningu og fylgja innri ferlum.
  • Styðja við innri og ytri endurskoðun og taka þátt í verkefnum sem viðhalda, bæta eða þróa fjármála- og reikningsskilaferli.
  • Vinna með hagaðilum í rekstri að því að umbreyta flóknum fjárhagsupplýsingum í hagnýtar stjórnendaupplýsingar.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólagráða í fjármálum, reikningshaldi, hagfræði, fjármálaverkfræði eða öðru sem nýtist í starfi.
  • Reynsla við kostnaðar- og fjármálagreiningu, skýrslugerð fyrir stjórnendur og gerð fjárhagsáætlana og spáa.
  • Góð færni í Excel og stafrænni tækni og geta til að vinna af nákvæmni með flókin fjárhags- og framleiðslugögn.
  • Hagnýt þekking á reikningsskilareglum og geta til að styðja við nákvæma skýrslugerð, eftirlit og kröfur vegna endurskoðunar.
  • Mjög góð enskukunnátta og hæfni til að kynna niðurstöður fjármálagreininga á skýran hátt fyrir hagaðilum, bæði innan og utan fjármálasviðs.
  • Geta til að vinna sjálfstætt, forgangsraða verkefnum og bera ábyrgð á skilum þeirra á réttum tíma. Reynsla af því að leiðbeina sérfræðingum og styðja við þróun þeirra er kostur.
Fríðindi í starfi
  • Okkar menning: Við höfum sterk gildi að leiðarljósi – störfum af heilindum, náum framúrskarandi árangri, sýnum fólki umhyggju og leiðum af hugrekki.
  • Öryggi í fyrirrúmi: Öryggi er ekki aðeins forgangsmál – það er hluti af okkar grunngildum. Við upphaf og lok hvers verks höfum við að leiðarljósi að vernda það sem skiptir máli.
  • Velferð starfsfólks: Aðgangur að Velferðartorgi þar sem þú getur leitað til reyndra fagaðila eftir stuðningi og ráðgjöf, í fullum trúnaði.
  • Starfsþróun: Við gefum þér svigrúm til að vaxa, kanna nýja möguleika og byggja starfsferil á þínum áhuga.
  • Samkeppnishæf kjör: Við bjóðum samkeppnishæf laun og fríðindi sem endurspegla áherslu okkar á að meta hæfileika þína að verðleikum og stuðla að vellíðan þinni.
  • Staður þar sem þú vilt vera: Við höfum ítrekað hlotið viðurkenningu sem eitt af bestu fyrirtækjunum til að starfa hjá. Við bjóðum upp á öruggt starfsumhverfi þar sem virðing er í fyrirrúmi.
Auglýsing birt20. nóvember 2026
Umsóknarfrestur4. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hraun 158199, 731 Reyðarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar