

Tæknilegur bókari
Sessor leitar að öflugum tæknilegum bókara til starfa við fjármála- og bókhaldsþjónustu félagsins.
Við leitum að einstaklingi sem hefur traustan grunn í bókhaldi og uppgjörum, áhuga á tækni og metnað til að þróa og bæta vinnubrögð. Starfið er fjölbreytt og felur meðal annars í sér umsjón með bókhaldi viðskiptavina, afstemmingar, uppgjör, yfirferð fjárhagsupplýsinga og úrlausn bókhaldslegra álitaefna.
Hjá Sessor leggjum við áherslu á að nýta tækni og sjálfvirkni til að einfalda vinnu, bæta gæði og draga úr handvirkum aðgerðum. Þannig nýtist þekking og reynsla starfsmanna best við eftirlit, greiningu og úrlausn verkefna sem krefjast faglegrar umfjöllunar.
Sem tæknilegur bókari hjá Sessor hefur þú umsjón og eftirlit með bókhaldi og reglubundnum uppgjörum fyrir hóp viðskiptavina.
Þú sinnir afstemmingum og yfirferð fjárhagsupplýsinga, greinir frávik og fylgir eftir atriðum sem þarfnast frekari skoðunar. Jafnframt tekur þú þátt í að þróa verklag og ferla með það að markmiði að auka gæði, skilvirkni og áreiðanleika.
Starfið felur í sér náið samstarf við viðskiptavini og samstarfsfólk Sessor og gefur tækifæri til að hafa áhrif á hvernig þjónustan og vinnubrögðin þróast.
-
Umsjón með bókhaldi og reglubundnum uppgjörum viðskiptavina
-
Afstemmingar og yfirferð fjárhagsbókhalds
-
Greiningar og úrlausn frávika
-
Mánaðaruppgjör og undirbúningur ársuppgjöra
-
Reglubundin skil til opinberra aðila
-
Samskipti við viðskiptavini vegna bókhalds og uppgjöra
-
Þátttaka í þróun og umbótum á ferlum og verklagi
Við leitum að einstaklingi sem:
-
Hefur djúpa þekkingu á bókhaldi, afstemmingum og uppgjörum
-
Býr yfir haldbærri þekkingu á helstu viðskiptakerfum og metnaði til að tileinka sér ný vinnubrögð
-
Getur lagt sjálfstætt og faglegt mat á bókhaldslega meðferð gagna
-
Hefur góða almenna tæknifærni
Reynsla af innleiðingum kerfa og umbótum á bókhaldsferlum er kostur.
Við leitum að einstaklingi sem:
-
…er lausnamiðaður og leitar lausna þegar frávik koma upp,
-
…getur starfað sjálfstætt og tekið ábyrgð á eigin verkefnum,
-
…vinnur skipulega og fylgir verkefnum eftir,
-
…nálgast niðurstöður með gagnrýnum hætti og bregst við þegar eitthvað stenst ekki skoðun,
-
…sýnir frumkvæði og kemur auga á tækifæri til umbóta,
-
…er tilbúinn að tileinka sér ný vinnubrögð og prófa nýjar aðferðir,
-
…á auðvelt með að starfa í teymi og er faglegur í samskiptum.
Sessor er óháð ráðgjafar - og þjónustufyrirtæki á sviði upplýsingatækni, fjármála og rekstrar. Við sérhæfum okkur í að móta heildarlausnir sem tengja saman rekstur, tækni og fjármál með það að markmiði að bæta árangur og lækka heildarkostnað viðskiptavina.
Við erum með starfsstöðvar í Kópavogi, á Húsavík, Akureyri og í Vestmannaeyjum, og saman vinnum við að fjölbreyttum verkefnum með ólíku fólki þar sem reynsla og sjónarhorn hvers og eins styrkja heildina.
Við leggjum ríka áherslu á persónulegan og faglegan vöxt hjá starfsfólki okkar. Með fjölbreyttum tækifærum til náms og þróunar styðjum við hvert og eitt þeirra við að ná fram sinni bestu frammistöðu og blómstra í starfi. Við trúum að með því að rækta góð samskipti og efla samvinnu innan fyrirtækisins sköpum við umgjörð þar sem nýjar hugmyndir kvikna og lausnir verða til.
Sessor leitar stöðugt að nýju starfsfólki sem samsamar sig okkar gildum og vill leggja sitt af mörkum til að móta framtíðina. Ef þú hefur ástríðu fyrir tækni og nýsköpun og ert klár í að mæta krefjandi verkefnum í örvandi umhverfi, þá hvetjum við þig til að sækja um.
Við skoðum umsóknir jafnóðum og þær berast.
Frekari upplýsingar veitir Andri Dan Traustason, í tölvupósti [email protected].
Íslenska
Enska










