
Fjármála og efnahagsráðuneytið
Meginhlutverk fjármála- og efnahagsráðuneytis felst í yfirstjórn opinberra fjármála og efnahagsmála. Ráðuneytið fer með málefni fjármálamarkaðarins, ber ábyrgð á bættum stjórnunarháttum og áætlanagerð, hefur með höndum virka stjórn mannauðsmála ríkisins og er leiðandi í umbótum og nýsköpun í rekstri ríkisins.
Ráðherra, fer með yfirstjórn ráðuneytisins og ber ábyrgð á öllum stjórnarframkvæmdum þess.
Ráðuneytisstjóri stýrir ráðuneytinu undir yfirstjórn ráðherra.
Ráðuneytið starfar sem ein heild og skiptist í eftirfarandi; skrifstofa efnahagsmála, skrifstofa fjármálamarkaðar, skrifstofa opinberra fjármála, skrifstofa skattamála, skrifstofa stjórnunar og umbóta, skrifstofa yfirstjórnar og skrifstofu rekstrar og innri þjónustu. Að auki starfar kjara- og mannauðssýsla ríkisins sem hluti af ráðuneytinu og telst hún vera ráðuneytisstofnun í skilningi 17. gr. stjórnarráðslaga.
Ráðuneytisstjóri annast samræmingu á starfsemi skrifstofa og sviða og felur einum starfsmanna hverrar skrifstofu og sviðs staðgöngu fyrir skrifstofustjóra í fjarveru þeirra. Að auki geta verið starfræktir til lengri og skemmri tíma sérstakir verkefnahópar eða -teymi til að vinna að málefnum og verkefnum sem varða verksvið fleiri en einnar skipulagseiningar ráðuneytisins, skv. nánari ákvörðun hverju sinni.

Sérfræðingur í reikningsskilum og fjármálum
Fjármála- og efnahagsráðuneytið leitar að framúrskarandi sérfræðingi til að taka þátt í að móta og þróa reikningsskil ríkisins og stuðla að áframhaldandi framþróun í fjármálastjórn hins opinbera.
Framundan er mótun og innleiðing nýrra áherslna í eftirliti með opinberum fjármálum. Starfið felur í sér spennandi tækifæri til að bæta stýringu ríkisfjármála og stuðla að umbótum, auknum árangri og hagkvæmni í starfsemi ríkisins.
Í boði er áhugavert starf á krefjandi og skemmtilegum vinnustað. Starfið tilheyrir skrifstofu stjórnunar og umbóta sem sinnir fjárstýringu og rekstrarmálefnum ríkisins, lánamálum, umbótastarfi, eigna- og framkvæmdamálum og stefnumörkun í upplýsingatæknimálum ríkisins.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þróun og ráðgjöf varðandi reikningsskil ríkisins.
- Gerð greinargerða um afkomu ríkissjóðs.
- Þróun rekstraráætlana.
- Samskipti við Fjársýslu ríkisins, m.a. varðandi gerð ríkisreiknings.
- Samstarf við aðrar skrifstofur, ráðuneyti og stofnanir.
- Þátttaka í alþjóðlegu samstarfi á starfssviði ráðuneytisins.
- Margvísleg tímabundin verkefni varðandi fjármál ríkisins.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Meistaragráða sem nýtist í starfi, t.d. á sviði viðskiptafræði, reikningsskila og endurskoðunar eða fjármála. Löggilding í endurskoðun er kostur.
- Góð reynsla á sviði reikningsskila og endurskoðunar auk þekkingar á alþjóðlegum reikningsskilastöðlum.
- Þekking og reynsla af stefnumótun og þróunar- og breytingaverkefnum.
- Reynsla af fjármálastjórn og áætlanagerð er kostur.
- Greiningarhæfni og fagleg dómgreind við mat á upplýsingum og valkostum ásamt hæfni til að rökstyðja og miðla niðurstöðum með skýrum hætti.
- Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð.
- Góð samskipta- og samstarfshæfni og geta til að byggja upp traust í samstarfi.
- Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti. Vald á einu Norðurlandamáli er kostur.
Auglýsing birt30. október 2026
Umsóknarfrestur10. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
DanskaValkvætt
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Reykjavík, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
ÁrsreikningarFagmennskaFrumkvæðiGagnagreiningLöggiltur endurskoðandiMannleg samskiptiMetnaðurNákvæmniSjálfstæð vinnubrögðTeymisvinna
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Innkaup og þjónusta
Rubix Ísland ehf

Framkvæmdastjóri Fimleikafélagsins Björk
Fimleikafélagið Björk

Bókari
Eðalfang ehf.

Sérfræðingur í innkaupum
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Financial Analyst | Embla Medical
Embla Medical | Össur

Verkefnastjóri í fjármálateymi - Nýr Landspítali – Hlutastarf
Nýr Landspítali ohf.

Fjármálastjóri
SÁÁ

Fjármálasérfræðingur hjá Arctic Therapeutics
Arctic Therapeutics ehf.

Forstöðumaður Kópavogslaugar - afleysing
Kópavogslaug

Sérfræðingur í opinberum innkaupum
FSRE

Teymisstjóri launamála hjá Hafnarfjarðarbæ
Hafnarfjarðarbær

Sérfræðingur í fjármálum - Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Heilbrigðisstofnun Norðurlands