

Sérfræðingur í innkaupum
Við leitum að öflugum innkaupasérfræðingi til að bætast í hópinn okkar hjá Isavia.
Starfið fellur undir innkaupadeild á fjármálasviði Isavia og felur í sér fjölbreytta ráðgjöf og stuðning við svið og félög innan Isavia samstæðunnar á sviði innkaupa, útboða og samningagerðar. Innkaupasérfræðingur hefur umsjón með undirbúningi og framkvæmd innkaupaferla, vinnur náið með ólíkum einingum samstæðunnar og tekur þátt í að þróa og bæta innkaupastarfsemi félagsins.
Við leitum að einstaklingi sem hefur frumkvæði, vinnur sjálfstætt og skipulega og hefur ánægju af því að leysa fjölbreytt verkefni í lifandi starfsumhverfi
Helstu verkefni
-
Ráðgjöf og stuðningur vegna innkaupa og samningagerðar
-
Skipulagning og undirbúningur innkaupa
-
Gerð útboðsgagna, verðfyrirspurna og samninga
-
Umsjón með framkvæmd útboða, verðfyrirspurna og sérleyfisútboða
-
Samskipti við birgja, bjóðendur og aðra hagsmunaaðila
-
Greining innkaupagagna, miðlun upplýsinga og þátttaka í umbótum á innkaupaferlum og vinnubrögðum
Hæfniskröfur
-
Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði verkfræði, lögfræði eða viðskiptafræði
-
Framúrskarandi færni í skjalagerð, greiningu og úrvinnslu upplýsinga
-
Framúrskarandi samskipta- og samvinnuhæfni
-
Góð hæfni til að miðla upplýsingum á skýran og sannfærandi hátt, bæði skriflega og munnlega
-
Góð stafræn færni og hæfni til að nýta nútímatækni, þ.m.t. gervigreind, til að auka gæði og skilvirkni í vinnu
-
Þekking og reynsla af undirbúningi og framkvæmd útboða er kostur
-
Þekking og reynsla af samningagerð og samningarekstri er kostur
-
Þekking og reynsla af verkefnastjórnun er kostur
Starfsstöð: Hafnarfjörður og Keflavík
Við bjóðum upp á hollan og góðan mat í mötuneytum okkar og allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.
Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Birkir Guðmundsson, deildastjóri á netfangið [email protected]
Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið.
Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um.
Isavia er vinnustaður þar sem við sýnum hvert öðru virðingu og erum heiðarleg gagnvart sjálfum okkur og öðrum. Við gætum þess að viðhalda gleðinni, erum hugrökk, uppbyggileg og tökum ábyrgð á eigin frammistöðu. Saman náum við árangri.
Enska
Íslenska










