Kópavogslaug
Kópavogslaug
Kópavogslaug

Forstöðumaður Kópavogslaugar - afleysing

Kópavogslaug er ein vinsælasta sundlaug landsins og mikilvægur samkomustaður fyrir íbúa og aðra gesti á öllum aldri. Við leitum að öflugum og lausnamiðuðum leiðtoga í starf forstöðumanns laugarinnar.

Starfið felur í sér yfirumsjón með daglegum rekstri, fjármálum, mannauðsmálum, öryggismálum og þjónustu við gesti. Forstöðumaður leiðir starfsemi laugarinnar í nánu samstarfi við deildarstjóra íþróttadeildar og aðra hagaðila.

Um er að ræða tímabundið starf í 6 mánuði með möguleika á framlengingu. Viðkomandi þarf að geta hafið störf eins fljótt og auðið er.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ber ábyrgð á daglegum rekstri og starfsemi Kópavogslaugar
  • Stýrir nýtingu mannvirkisins með hliðsjón af þörfum almennings, skóla, íþróttafélaga og annarra notenda
  • Ber ábyrgð á starfsmannamálum, þar á meðal ráðningum, þjálfun, starfsþróun og launamálum
  • Hefur umsjón með skipulagi vakta og mönnun í samráði við vaktstjóra
  • Ber ábyrgð á öryggismálum laugarinnar og tryggir að starfsemi sé í samræmi við lög reglur þar um
  • Tryggir góða þjónustu og fagleg samskipti við gesti og aðra notendur laugarinnar.
  • Annast samskipti við skóla vegna sundkennslu og tryggir að kennarar og leiðbeinendur uppfylli tilskildar hæfniskröfur
  • Ber ábyrgð á aðgangs- og sölukerfum laugarinnar og að þau séu ætíð uppfærð og í samræmi við kröfur
  • Hefur umsjón með tækjabúnaði, viðhaldi og endurbótum í samstarfi við deildarstjóra og eignadeild
  • Tekur þátt í markaðs- og kynningarmálum sem tengjast starfsemi laugarinnar
  • Sinnir skýrslugjöf og gagnaskilum vegna reksturs og starfsemi
  • Fylgist með nýjungum á sviði reksturs, þjónustu, öryggis og umhirðu sundlauga
  • Sinnir öðrum verkefnum samkvæmt ákvörðun yfirmanns
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun á sviði íþrótta-, tómstunda-, uppeldis- eða viðskipta-/rekstrarfræða
  • Framhaldsmenntun á framangreindum sviðum er kostur
  • Góð reynsla af stjórnunar- og/eða rekstrarstörfum er skilyrði
  • Þekking og reynsla af mannauðsstjórnun
  • Framúrskarandi samskipta- og leiðtogahæfni
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og geta til að vinna sjálfstætt
  • Lausnamiðuð hugsun og hæfni til að leiða hóp
  • Góð tölvukunnátta og færni í notkun upplýsingakerfa
  • Gott vald á íslensku í ræðu og riti
Fríðindi í starfi

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins. 

Auglýsing birt21. október 2026
Umsóknarfrestur31. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Borgarholtsbraut 17, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar