
Sérfræðingur í opinberum innkaupum
Hjá Framkvæmdasýslunni-Ríkiseignum (FSRE) ráða opinber innkaup miklu um hvernig fjármunum ríkisins er varið í aðstöðu fyrir heilbrigðisþjónustu, menntun, löggæslu, menningu og náttúruvernd um allt land. Nú leitum við að lausnamiðuðum, nákvæmum og framsæknum sérfræðingi með þekkingu og áhuga á opinberum innkaupum í útboðsteymi okkar.
Sem sérfræðingur í opinberum innkaupum veitir þú ráðgjöf og tekur þátt í útboðsmálum vegna framkvæmdaverkefna FSRE, allt frá vali á innkaupaleið og gerð útboðsgagna til mats á tilboðum og undirbúnings samningsgerðar. Þú tilheyrir útboðsteymi FSRE, sem er hluti af þjónustusviði og vinnur í nánu samstarfi við önnur svið stofnunarinnar að verkefnum í umsjón FSRE. Umfang verkefna spannar um 20 milljarða króna á ári og því skiptir fagmennska í innkaupum miklu máli.
Þú færð jafnframt tækifæri til að móta framtíð innkaupamála hjá FSRE, meðal annars með því að einfalda verklag og nýta sjálfvirknivæðingu og gervigreind í innkaupaferlinu. Þetta er tækifæri fyrir einstakling sem hefur góða skipulagshæfni, á auðvelt með samskipti og hefur brennandi áhuga á innkaupum og skilvirkum ferlum.
- Umsjón með innkaupum í samræmi við lög og reglur um opinber innkaup
- Ráðgjöf tengd útboðsmálum
- Faglegur stuðningur og ráðgjöf þvert á stofnunina
- Gerð útboðsgagna og eftirfylgni innkaupaferla
- Mat á innsendum tilboðum og undirbúningur samningsgerðar
- Framsetning gagna vegna ákvarðanatöku um framgang verkefna
- Þátttaka í framþróun innkaupamála og almennum umbótaverkefnum hjá stofnuninni
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni og rík hæfni í teymisvinnu
- Frumkvæði, metnaður, skipulagsfærni og öguð vinnubrögð
- Nákvæmni og geta til að halda utan um mörg verkefni samtímis
- Góð tök á Office 365 (t.d. Word, Excel og PowerPoint)
- Góð íslensku- og enskukunnátta og hæfni í tjáningu í ræðu og riti
Eftirfarandi telst til kosta
- Reynsla og þekking af innkaupum og útboðsmálum
- Reynsla af verkefnastjórnun
- Reynsla og þekking af framkvæmdaverkefnum
- Þekking eða reynsla af opinberri stjórnsýslu
- Þekking á sjálfvirknivæðingu og nýtingu gervigreindar
Hvað við bjóðum
- Verkefnamiðað vinnuumhverfi og sveigjanlegan vinnutíma
- Fjölbreytt og krefjandi verkefni sem snerta flest svið samfélagsins
- Stuðning við þekkingaröflun og starfsþróun, meðal annars aðgang að fjölbreyttum fræðsluveitum og alþjóðlegu tengslaneti
- Heilsustyrk og samgöngustyrk
- Hádegisþjónustu Maul
- Öflugt starfsmannafélag
- Fjölskylduvænan vinnustað þar sem lögð er áhersla á jafnrétti og góða vinnustaðamenningu
Íslenska
Enska










