
Verkefnastjóri hönnunar
Langar þig að hafa áhrif á það hvernig húsnæði ríkisins verður til? Hjá Framkvæmdasýslunni-Ríkiseignum (FSRE) er nú laust spennandi starf verkefnastjóra í deild hönnunar á sviði hönnunar og áætlana. Þar færðu tækifæri til að leiða verkefni frá fyrstu hugmynd og fram að útboði framkvæmda, í nánu samstarfi við önnur svið FSRE, ráðuneyti og stofnanir.
Deild hönnunar sér um verkefnastjórn við frumathugun, frum-, for- og verkhönnun, eftirfylgni með framgangi verkefna hvað varðar kostnað, gæði og tíma, undirbúning útboða og útboðsgagna í samvinnu við útboðssérfræðinga ásamt gerð skilamats á verkhlutum hönnunar. Verkefnin eru fjölbreytt og snúa meðal annars að aðstöðu stofnana og ráðuneyta, endurgerð mannvirkja og leiguverkefnum, innan og utan eignasafns FSRE.
Sem verkefnastjóri berð þú fjárhagslega og stjórnunarlega ábyrgð á verkefnum, allt frá fyrstu greiningu í gegnum hönnun og útboð. Þú leiðir hönnunarferlið og heldur utan um alla þræði, en hönnunarvinnan sjálf er ekki á þinni könnu. Þú vinnur sjálfstætt, hefur frumkvæði og færð að nýta sérþekkingu þína, tekur þátt í verkefnahópum þvert á stofnunina og styður önnur svið FSRE við þarfagreiningar og frumathuganir. Starfið heyrir undir deildarstjóra hönnunar.
Á þínu borði verða meðal annars:
- Verkefnastjórn í framkvæmda- og leiguverkefnum á stigi greininga og hönnunar, með fjárhagslegri og stjórnunarlegri ábyrgð verkefna
- Umsjón með gerð frumathugana og þ.á.m. þarfa-, valkosta- og kostnaðargreininga
- Umsjón með útboðum hönnunar í leigu- og framkvæmdaverkefnum í samvinnu við útboðssérfræðinga og framkvæmdasvið, þar á meðal gerð kröfulýsinga
- Umsjón með hönnunarstigi verkefna, með tilliti til tíma og kostnaðar
- Samskipti við hagsmunaaðila, ráðuneyti og stofnanir
- Eftirfylgni, gerð tíma- og kostnaðaráætlana og stöðumat verkefna
- Þátttaka í þróunar- og umbótaverkefnum þvert á FSRE
Við leitum að manneskju sem hefur:
- Háskólamenntun á sviði mannvirkjagerðar, t.d. verkfræði, tæknifræði, byggingafræði eða arkitektúr. Meistarapróf er skilyrði
- Þekkingu og reynslu af aðferðafræði verkefnastjórnunar og verkefnastjórn mannvirkja á greiningar- og/eða hönnunarstigi
- Reynslu af þarfa- og kostnaðargreiningum
- Reynslu af hönnunarferli og rýni hönnunar
- Þekkingu og reynslu af útboðsferli og ferli opinberra framkvæmda
- Færni í textagerð og framsetningu greininga og hönnunargagna
- Jákvætt og lausnamiðað viðhorf, færni í mannlegum samskiptum og ríka hæfni í teymisvinnu
- Góða færni í að forgangsraða verkefnum og skila árangri í kviku starfsumhverfi
- Þjónustumiðuð og skipulögð vinnubrögð
- Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
Eftirfarandi telst til kosta
- Iðnmenntun á byggingarsviði til viðbótar við háskólamenntun
- Þekking á hönnunarhugbúnaði og upplýsingalíkönum (BIM)
- Þekking eða reynsla af opinberri stjórnsýslu
- Þekking á stafrænni þróun
- Reynsla af skipulagsmálum
Hjá FSRE bjóðum við:
- Verkefnamiðað vinnuumhverfi og sveigjanlegan vinnutíma
- Fjölbreytt og krefjandi verkefni sem snerta flest svið samfélagsins
- Stuðning við þekkingaröflun og starfsþróun, meðal annars í gegnum alþjóðlegt tengslanet
- Fjölskylduvænan vinnustað þar sem lögð er áhersla á jafnrétti og góða vinnustaðamenningu
Enska
Íslenska








