Háskólinn á Akureyri
Háskólinn á Akureyri
Háskólinn á Akureyri

Verkefnastjóri mannauðsmála

Háskólinn á Akureyri leitar að öflugum einstaklingi til að ganga til liðs við metnaðarfullt mannauðs- og samskiptasvið háskólans. Verkefnastjóri mannauðsmála þjónustar allar einingar háskólans og starfar náið með stjórnendum og öðru starfsfólki sviðsins. Næsti yfirmaður er sviðsstjóri mannauðs- og samskiptasviðs. Starfsstöðin er á háskólasvæðinu á Akureyri og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni á sviði mannauðsmála og náið samstarf við stjórnendur og starfsfólk. Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á að skapa vinnuumhverfi þar sem fólk getur vaxið, haft áhrif og fundið að það tilheyri.

Helstu verkefni og ábyrgð

Verkefnastjóri hefur frumkvæði og faglega forystu í fjölbreyttum verkefnum á sviði mannauðsmála. Í starfinu felst ráðgjöf við stjórnendur og starfsfólk, þróun og innleiðing verkferla, þátttaka í úrlausn viðkvæmra og flókinna mála og stuðningur við jákvæða vinnustaðamenningu. Helstu verkefni eru: 

  • Umsjón með og þróun ráðningar- og móttökuferla hjá háskólanum
  • Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur og starfsfólk í mannauðsmálum 
  • Framkvæmd og túlkun laga, reglna, kjarasamninga, stefna og annarra gagna sem varða mannauðsmál 
  • Þátttaka í verkefnum sem lúta að viðveru, vellíðan og vinnustaðamenningu
  • Greining og eftirfylgni mannauðsupplýsinga
  • Önnur og fjölbreytt verkefni á sviði mannauðsmála háskólans  
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf á meistarastigi sem nýtist í starfi, svo sem á sviði mannauðsstjórnunar, lögfræði eða opinberrar stjórnsýslu
  • Þekking og færni í að greina, túlka og beita lögum, reglum, kjarasamningum og öðrum réttarheimildum við úrlausn mannauðsmála
  • Góð greiningarhæfni og færni í að vinna úr upplýsingum og setja niðurstöður fram á skýran og skipulegan hátt
  • Reynsla af faglegri ráðgjöf og úrlausn mála á sviði mannauðs, vinnuréttar eða opinberrar stjórnsýslu
  • Frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt 
  • Mjög góð samskipta- og samstarfshæfni
  • Heilindi, fagmennska og hæfni til að vinna með trúnaðarupplýsingar 
  • Góð færni til að tjá sig í ræðu og riti bæði á íslensku og ensku
  • Gerð er krafa um vammleysi, gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist eðli og ábyrgð starfsins.

 

Umsókn skal fylgja:

  • Greinargott yfirlit yfir náms- og starfsferil
  • Staðfest afrit af viðeigandi prófskírteinum
  • Kynningarbréf þar sem fjallað er ítarlega um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins
  • Nöfn að minnsta kosti tveggja meðmælenda
Auglýsing birt6. október 2026
Umsóknarfrestur12. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Norðurslóð 202123, 600 Akureyri
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar