Fjársýslan
Fjársýslan

Sérfræðingur í launum og kjaramálum

Viltu taka þátt í að þróa skilvirka, örugga og góða þjónustu í launamálum ríkisins?
Fjársýslan leitar að öflugum sérfræðingi til starfa á mannauðssviði.

Hjá okkur færðu tækifæri til að vinna að fjölbreyttum og spennandi verkefnum sem tengjast launamálum ríkisins – allt frá móttöku gagna og úrvinnslu þeirra til greiðslu launa ríkisstarfsfólks. Áhersla er lögð á skilvirkni, áreiðanleika, gagnaöryggi og lausnir sem skapa raunverulegt virði fyrir ríkið.

Við leitum að töluglöggum, nákvæmum og skipulögðum einstaklingi sem hefur áhuga á launamálum, kjarasamningum og stöðugum umbótum. Þú munt starfa í fjölbreyttu og faglegu umhverfi með hópi sérfræðinga sem leggur metnað í góða þjónustu, gott samstarf og vönduð vinnubrögð.

Um starfið

Á mannauðssviði Fjársýslunnar starfar öflugur hópur við launavinnslu og keyrslur fyrir stofnanir ríkisins. Sviðið veitir auk þess mannauðsráðgjöf og fræðslu um launa- og kjaramál ásamt því að leita stöðugt leiða við að efla og þróa þjónustuna.

Fjársýslan er þjónustu- og þekkingarstofnun á sviði opinberra fjármála. Við veitum ríkisstofnunum fjölbreytta þjónustu og ráðgjöf á sviði opinberra innkaupa, fjármála og mannauðsmála og vinnum markvisst að því að þróa bætta þjónustu og skapa virði fyrir viðskiptavini.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Launavinnsla fyrir ríkisstofnanir
  • Fræðsla, ráðgjöf og miðlun upplýsinga
  • Greining gagna og upplýsingaúrvinnsla
  • Þróa ferla, verklag og stafrænar lausnir
  • Samskipti og samstarf við ríkisstofnanir
  • Önnur fjölbreytt verkefni sem tengjast starfseminni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Góð þekking á launavinnslu og kjarasamningum
  • Góð þekking á Excel
  • Reynsla af Orra-launakerfi ríkisins er kostur
  • Reynsla af nýtingu gervigreindartóla kostur
  • Rík þjónustulund og góð samskiptahæfni
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og nákvæmni
  • Mjög góð greiningarhæfni og lausnamiðuð hugsun
  • Gott vald á íslensku og ensku
Auglýsing birt1. október 2026
Umsóknarfrestur12. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Katrínartún 6
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar