

Sérfræðingur í mannauðsteymi
Securitas leitar að metnaðarfullum og kraftmiklum aðila til að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum á sviði mannauðs og menningar. Viðkomandi kemur til að starfa með mannauðsteyminu að verkefnum er snúa að samskiptum við stjórnendur og starfsfólk allt frá ráðningu til starfsloka ásamt verkefnum tengdum umbóta- og gæðamálum. Um er að ræða tímabundið starf til eins árs
Helstu verkefni:
- Aðstoð við undirbúning og framkvæmd ráðninga
- Aðstoð við fræðslu og þjálfun
- Samskipti og upplýsingagjöf til starfsfólks
- Aðstoð við ýmis mannauðstengd málefni, s.s. skráningar og skýrslugerð
- Þátttaka í verkefnum á sviði gæðamála s.s úttektir, ábendingar og fl.
- Þátttaka í ferlavinnu, viðhaldi gæðahandbókar og þróun verklags
Við leitum að einstaklingi sem:
- Býr yfir framúrskarandi samskiptahæfni
- Sýnir frumkvæði, metnað og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Hefur brennandi áhuga á mannauðs- og gæðamálum
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, æskilegt á sviði mannauðsmála eða sálfræði
- Reynsla af mannauðsmálum er kostur
Við bjóðum spennandi og krefjandi starf hjá fyrirtæki sem sérhæfir sig í öryggis- og þjónustulausnum. Hjá okkur er frábært starfsumhverfi þar sem liðsheild og árangur fara saman og við leggjum mikla áherslu á góða þjálfun, aðbúnað og að styrkleikar hvers og eins fái að njóta sín.
Starfið hentar öllum kynjum sem eru með hreint sakavottorð. Við hvetjum umsækjendur til að skila inn umsóknum sem fyrst þar sem unnið verður úr þeim jafnóðum og þær berast. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál og er öllum umsóknum svarað.
Umsóknarfrestur er til og með 4.októbr nk. Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðrún Inga Guðlaugsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs og menningar, í síma 580-7000
Íslenska