Securitas
Securitas
Securitas

Tæknistarf á Reykjanesi

Viltu verða partur af skemmtilegum vinnustað ?

Vegna aukinna umsvifa leitum við að liðsauka í okkar frábæra tækniteymi á Reykjanesinu. Lögð er rík áhersla á jákvætt hugarfar, framúrskarandi þjónustu, sjálfstæð vinnubrögð og góðan liðsanda.

Starfið felur í sér fjölbreytta tækniþjónustu á öryggis- og brunaviðvörunarkerfum, ásamt uppsetningum og forritun á aðgangstýrikerfum, myndavélum og eftirlitsbúnaði.

Ef þú...

  • býrð yfir menntun í rafiðn eða sambærilegri tæknimenntun
  • hefur brennandi áhuga á tækninýjungum og góða almenna tækniþekkingu
  • býrð yfir þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
  • sýnir frumkvæði í starfi og metnað til að takast á við krefjandi verkefni
  • hefur gott vald á talaðri og skrifaðri íslensku
  • hefur gott vald á talaðri og skrifaðri ensku
  • býrð yfir góðri tölvuþekkingu

...þá gætum við verið að leita af þér!

Í boði er fullt starf og er vinnutíminn frá kl. 08:00-16:00 mánudaga - fimmtudags og stytting vinnuvikunnar á föstudögum.

Starfið hentar öllum kynjum sem eru með hreint sakavottorð og gilt ökuskírteini.

Umsóknarfrestur er til og með 25. september nk. og skulu umsóknir sendar inn hér.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Bragi Páll Sigurðsson, deildarstjóri tæknisviðs á Reykjanesi, [email protected]

Auglýsing birt4. september 2026
Umsóknarfrestur25. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Iðavellir 13, 230 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tæknikunnáttaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar