Kerecis
Kerecis
Kerecis

Mannauðs- og skrifstofufulltrúi

Langar þig að starfa í fjölbreyttu hlutverki þar sem mannauðsmál og skrifstofuumsjón koma saman?

Kerecis leitar að skipulögðum, þjónustulunduðum og jákvæðum einstaklingi í starf skrifstofu- og mannauðsfulltrúa á skrifstofu fyrirtækisins í Reykjavík.

Í þessu fjölbreytta starfi gegnir þú mikilvægu hlutverki í daglegum mannauðsmálum fyrirtækisins og stuðlar að jákvæðri upplifun starfsfólks allt frá ráðningu til starfsloka. Jafnframt hefur þú umsjón með daglegri skrifstofuþjónustu og stuðlar að því að vinnuumhverfið sé faglegt, vel skipulagt og skilvirkt.

Helstu verkefni og ábyrgð

Mannauðsmál

  • Koma að ráðningarferli og móttöku nýs starfsfólks.
  • Halda utan um starfsmannagögn og uppfæra upplýsingar í mannauðs- og tímaskráningarkerfi.
  • Sjá um samskipti og upplýsingagjöf til starfsfólks varðandi mannauðs- og launamál.
  • Aðstoða við undirbúning launavinnslu
  • Vinna skýrslur og aðstoða við eftirfylgni með fræðslu og markmiðasetningu.
  • Styðja við innleiðingu mannauðs- og þróunarverkefna.
  • Koma að breytingum á ráðningarsambandi starfsmanna og flutningi milli landa.

Skrifstofuumsjón

  • Taka á móti gestum og sinna daglegri þjónustu á skrifstofu.
  • Svara fyrirspurnum sem berast í síma.
  • Tryggja að vinnuaðstaða starfsfólks sé í góðu ástandi.
  • Samstarf við upplýsingatækni-, öryggis- og fasteignateymi vegna daglegs reksturs skrifstofunnar.
  • Panta og hafa umsjón með skrifstofuvörum og samskiptum við þjónustuaðila.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af mannauðsmálum og/ eða skrifstofuumsjón er kostur
  •  Góð tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér nýjungar
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð ásamt ríkri þjónustulund.
  • Góð enskukunnátta í ræðu og riti
Fríðindi í starfi

Við bjóðum ....

  • Fjölbreytt og áhugavert starf í vaxandi alþjóðlegu fyrirtæki.
  • Tækifæri til að hafa áhrif og taka þátt í þróun mannauðsmála.
  • Skemmtilegt og metnaðarfullt starfsumhverfi.
  • Náið samstarf við öflugt teymi bæði á Íslandi og erlendis.
  • Tækifæri til starfsþróunar og aukinnar ábyrgðar.
Auglýsing birt23. september 2026
Umsóknarfrestur2. október 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Suðurlandsbraut 18, 108 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar