
Félagsbústaðir
Félagsbústaðir eru stærsta þjónustufyrirtæki hérlendis á leigumarkaði með yfir 3.000 íbúðir til útleigu í Reykjavík. Á skrifstofunni starfa um 30 manns í anda gilda um samvinnu, virðingu og góða þjónustu. Félagsbústaðir eru í eigu Reykjavíkurborgar og eru í hópi framúrskarandi fyrirtækja á Íslandi.
Nánari upplýsingar má finna á www.felagsbustadir.is
Þjónusturáðgjafi
Félagsbústaðir leita að kraftmiklum og lausnamiðuðum þjónusturáðgjafa í fjölbreytt þjónustustarf í tímabundnu starfi til eins árs.
Í boði er spennandi tækifæri fyrir réttan aðila í að taka þátt í að þjónusta fjölbreyttan hóp leigjenda.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Móttaka, úrvinnsla og eftirfylgni margskonar fyrirspurna og erinda í síma og á miðlum fyrirtækisins
- Utanumhald og umsýsla leigusamninga: undirbúningur, samningagerð og eftirfylgni
- Samskipti og upplýsingagjöf til leigjenda og tengdra aðila
- Ábyrgð og þátttaka í ýmsum þróunar- og úrbótaverkefnum á sviði þjónustu og samskipta við leigjendur og samstarfsaðila
Menntunar- og hæfniskröfur
- Stúdentspróf skilyrði, háskólagráða sem nýtist í starfi er kostur
- Reynsla af sambærilegu starfi af sviði velferðarþjónustu er kostur.
- Rík þjónustulund, áhugi á fólki, hlýlegt viðmót og framúrskarandi samskiptafærni
- Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði í starfi.
- Skipulagshæfileikar og lausnamiðuð hugsun
- Færni til að vinna í teymi og vilji til að læra
- Áhugi á aukinni skilvirkni
- Góð tölvufærni
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Pólska og/eða arabíska er kostur
Auglýsing birt16. september 2026
Umsóknarfrestur30. september 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
PólskaValkvætt
Staðsetning
Þönglabakki 4, 109 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
SamviskusemiÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sala og skipulagning skyndihjálpar
Rauði krossinn á Íslandi

Starfsmaður á stjórnstöð
Öryggismiðstöðin

Dýralæknir / fagráðgjafi í heilbrigði og velferð dýra
Petmark ehf

Leiðtogi í umhverfis- og skipulagsmálum
Sveitarfélagið Hornafjörður

Hlutastarf í þjónustudeild - ELKO Grandi
ELKO

Starf í þjónustuveri Stafrænnar heilsu
Heilbrigðisráðuneytið

Þjónustufulltrúi í verkstæðismóttöku
ÍSBAND verkstæði og varahlutir

Rekstrarstjóri ævintýraferða á Adventure Ground og í Skaftafelli
Icelandia

Sölustjóri stáls
Ferro Zink

Bókari
Perlan

Starfsmaður í félagsmálum
Efling stéttarfélag

Þjónustufulltrúi
Efling stéttarfélag