
ELKO
ELKO, stærsta raftækjaverslun landsins, opnaði þann 28. febrúar árið 1998 og varð strax frá upphafi leiðandi á sínu sviði á Íslandi.
ELKO hefur ávallt haft það að markmiði að bjóða þekkt vörumerki raftækja á lágu verði.
Verslanir eru sex og með samtals 5.000 m2 sölusvæði auk stórs vöruhúss.
Hjá ELKO starfa um 240 manns. Verslanir ELKO eru í Lindum, Skeifunni, Granda, Akureyri, Flugstöð Leifs Eiríkssonar og Vefverslun ELKO.is

Hlutastarf í þjónustudeild - ELKO Grandi
Langar þig að vinna á skemmtilegum vinnustað með fjölbreytt verkefni og frábæru samstarfsfólki? ELKO Granda leitar að starfsfólki í hlutastarf sem er jákvætt og með mikla þjónustulund. ELKO leggur áherslu á góða nýliðamóttöku og þjálfun.
Við erum að ráða í þjónustudeild. Vinnutími er frá 11-18 á laugardögum og 12-18 á sunnudögum, unnið er aðra hvora helgi.
Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Afgreiðsla
- Almenn eftirkaupaþjónusta.
- Afhending og móttaka á vefpöntunum.
- Skráning á vörum í ábyrgðar- og tryggingarferli.
- Samskipti við viðskiptavini.
- Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri
- Íslensku- og enskukunnátta skilyrði
- Framúrskarandi færni í samskiptum og rík þjónustulund
- Stundvísi og áreiðanleiki
- Reynsla af þjónustustörfum er kostur
- Hreint sakavottorð
Fríðindi í starfi
- Árlegur líkamsræktarstyrkur
- Afsláttarkjör hjá ELKO, Lyfju, Krónunni og N1
- Aðgangur að velferðarpakka ELKO
- Aðgangur að fræðslupakka ELKO og Akademias
- Öflugt félagslíf með reglulegum viðburðum
- Starfsmannafélag með góðum vildarkjörum
Auglýsing birt15. september 2026
Umsóknarfrestur23. september 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Fiskislóð 15-21, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
AfgreiðslaJákvæðniÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Starfsmaður í frysti og kæligeymslu Aðfanga
Aðföng

A&R fulltrúi / Verkefnastjóri tónlistarútgáfu og markaðsmála
Vetur Music

Þjónusturáðgjafi Kia, Honda og Xpeng
Bílaumboðið Askja

Verslunarstjóri Huppu í Garðabæ
Ísbúð Huppu

Sölu- og þjónusturáðgjafi í Reykjanesbæ
VÍS

Sölu- og þjónusturáðgjafi á Akranesi
VÍS

Sölufulltrúi - Timburverslun BYKO
Byko

Tæknifólk í Framlínuþjónustu
OK

Starfsmaður í blómaheildverslun
Samasem ehf

Bókavörður á Djúpavogi
Bókasafn Múlaþings

Móttöku- og skrifstofustarf
Hagvangur

Sölumaður í vettvangssölu
Nói Síríus