
Bókasafn Múlaþings
Bókasafn Múlaþings er almenningsbókasafn með starfstöðvar á þremur stöðum, Egilsstöðum, Seyðisfirði og Djúpavogi. Útibú safnsins á Seyðisfirði og Djúpavogi eru jafnframt skólabókasöfn.
Bókasafn Múlaþings er tengt Landskerfi bókasafna, leitir.is. Allir íbúar í Múlaþingi eiga kost á bókasafnsskírteini, sem gildir á öllum stöðunum, sér að kostnaðarlausu.

Bókavörður á Djúpavogi
Bókasafn Múlaþings óskar eftir að ráða bókavörð í um 60% framtíðarstarf á starfsstöð safnsins á Djúpavogi. Safnið er bæði almennings- og skólabókasafn. Samkomulag er um upphaf starfs en æskilegt að það sé sem fyrst.
Helstu verkefni starfsmanns eru afgreiðsla, móttaka og frágangur safnkosts ásamt því að leiðbeina og veita safngestum aðstoð.
Næsti yfirmaður er forstöðumaður Bókasafns Múlaþings.
Möguleiki getur verið á hlutastarfi við Djúpavogsskóla til að auka starfshlutfall.
Starfið var upphaflega auglýst 14.9 2026 með umsóknarfrest til 28.9 2026 en ákveðið var að framlengja umsóknarfrestinn um tvær vikur.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með starfsstöð Bókasafns Múlaþings á Djúpavogi
- Þjónusta við gesti, upplýsingagjöf, aðstoð og afgreiðsla
- Skipuleggja samstarf og þjónustu safnsins við Djúpavogsskóla
- Aðstoð við nemendur og kennara
- Móttaka og frágangur safnkosts
- Umsjón með viðburðahaldi í samráði við yfirmann
Menntunar- og hæfniskröfur
- Gerð krafa um stúdentspróf eða sambærilega menntun sem nýtist í starfi
- Góð málakunnátta s.s. íslenska, enska, þriðja tungumál
- Góð almenn tölvukunnátta
- Reynsla af notkun gagnasafns Landskerfis bókasafna er kostur
- Nákvæmni, samviskusemi og góð samskiptafærni er nauðsyn
- Umsækjandi þarf að vera orðinn 18 ára
- Hreint sakavottorð
Auglýsing birt14. september 2026
Umsóknarfrestur12. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Varða 6, 765 Djúpivogur
Starfstegund
Hæfni
Hreint sakavottorðJákvæðniReyklausSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðStundvísiTóbakslausVandvirkniÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Starfsmaður í blómaheildverslun
Samasem ehf

Móttöku- og skrifstofustarf
Hagvangur

Sölumaður í vettvangssölu
Nói Síríus

Kvenkyns starfsmaður íþróttamiðstöðvar Norðfjarðar
Fjarðabyggð

Tæknilegur sölu- og þjónustufulltrúi ProLan
ProLan ehf.

Starfsfólk í ísbúð og booztbar - Akureyri
Ísbúðin Akureyri

Fullt starf í verslun - Framtíðarstarf
Zara Smáralind

A&R fulltrúi / Verkefnastjóri tónlistarútgáfu og markaðsmála
Vetur Music

Starfsmaður í árstíðar- og heimilisdeild - BYKO Selfoss
Byko

Innrammari / sölumaður
Innrammarinn ehf.

Lyfja Lágmúla - þjónusta og ráðgjöf á vaktarúllu
Lyfja

Móttaka á þjónustuverkstæði - Bílaumboð Suzuki og Vatt
Suzuki og Vatt - Bílaumboð