

Sérfræðingur í Global Labeling
Kerecis | Reykjavík
Viltu taka þátt í þróun og skráningu lækningatækja úr fiskroði ?
Kerecis er það fyrirtæki sem vex hraðast í heiminum á sviði meðferðar á vefjaskaða og byggir tækni sína á hagnýtingu á roði og fitusýrum. Lækningavörur Kerecis eru notaðar til meðhöndlunar á margskonar líkamsskaða; m.a. á skurðsárum, þrálátum sárum, og brunasárum til að flýta fyrir gróanda og að styrkja vef eftir skurðaðgerðir og slys.
Kerecis er alþjóðlegt lækningatækjafyrirtæki og hluti af Coloplast samsteypunni og starfsmenn starfa meðal annars á Íslandi, í Evrópu og Bandaríkjunum.
Vörur Kerecis eiga þátt í bata þúsunda einstaklinga um allan heim árlega.
Kerecis leitar að metnaðarfullum og nákvæmum einstaklingi til að ganga til liðs við Global Labeling teymið í Reykjavík.
Starfið hentar nákvæmum og lausnamiðuðum einstaklingi sem hefur auga fyrir smáatriðum, vill vinna þvert á teymi og hafa raunveruleg áhrif í alþjóðlegu heilbrigðisumhverfi.
-
Uppsetning, útgáfa og viðhald á vörunúmerum og merkingum, fylgiseðlum og markaðsefni.
-
Tryggja að gögn og merkingaupplýsingar séu réttar, uppfærðar og aðgengilegar í viðeigandi gagnagrunnum.
-
Yfirfara markaðs- og kynningarefni til að tryggja faglega, samræmda og rétta framsetningu sem samræmist kröfum mismunandi landa.
-
Taka þátt í markaðsskráningum, vöruþróun og úttektum.
-
Vinna með skráningar-, gæða-, þróunar-, framleiðslu- og markaðsdeildum að verkefnum sem styðja alþjóðlegan vöxt Kerecis.
-
Háskólamenntun eða sambærileg reynsla sem nýtist í starfi.
-
Reynsla af tæknilegri skjölun, gæðakerfum eða vinnu í reglugerðartengdu umhverfi.
-
Þekkingu á lækningatækjum, vörumerkingum og alþjóðlegum reglugerðarkröfum er kostur.
-
Þekking á BarTender, NiceLabel eða sambærilegum merkimiðakerfum er kostur.
-
Góð ensku kunnátta, skipulagshæfni og nákvæm vinnubrögð.
-
Jákvætt hugarfar og vilji til að vinna í samstarfi við alþjóðlegt teymi.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Jökull Úlfarsson, yfirmaður Global Labeling, [email protected]
Enska










