

Féhirðir í Reykjanesbæ - tímabundið starf
Langar þig að starfa í lifandi og fjölbreyttu umhverfi þar sem þjónusta, nákvæmni og traust skipta máli?
Við leitum að drífandi og þjónustulunduðum féhirði til starfa á Einstaklingssviði Íslandsbanka í Reykjanesbæ. Um er að ræða mikilvægt hlutverk í framlínu bankans þar sem þú tekur þátt í að skapa framúrskarandi upplifun fyrir viðskiptavini og tryggja örugga og skilvirka afgreiðslu fjármálaþjónustu.
ATH: um er að ræða tímabundið starf í um það bil 18 mánuði og æskilegt er að viðkomandi geti byrjað sem fyrst.
- Afgreiðsla viðskiptavina og þjónusta í útibúi
- Umsjón með reiðufé og verðmætum samkvæmt verklagsreglum bankans
- Inn- og útgreiðslur, gjaldeyrisviðskipti og önnur dagleg afgreiðsla
- Kynning og leiðbeiningar um stafrænar lausnir bankans
- Samstarf við aðra sérfræðinga útibúsins um þarfir viðskiptavina
- Þátttaka í að tryggja framúrskarandi þjónustu og jákvæða upplifun viðskiptavina
- Hefur ríka þjónustulund og metnað til að veita framúrskarandi þjónustu
- Er nákvæmur, skipulagður og ber ábyrgð á sínum verkefnum
- Á auðvelt með mannleg samskipti og liðsheildarvinnu
- Hefur gott tölvulæsi og áhuga á stafrænum lausnum
- Getur unnið vel undir álagi og tekið sjálfstæðar ákvarðanir
- Hefur lokið framhaldsskólamenntun, háskólamenntun er kostur
Hjá Íslandsbanka starfar öflugur hópur fólks sem vinnur saman að því að skapa framúrskarandi upplifun fyrir viðskiptavini. Við leggjum áherslu á traust, fagmennsku, samvinnu og stöðuga þróun. Starfsfólk fær tækifæri til að vaxa í starfi, þróa hæfni sína og hafa áhrif í nútímalegu vinnuumhverfi.
Íslenska
Enska










