Íslandsbanki
Íslandsbanki
Íslandsbanki

Forstöðumaður Markaðslausna - Stafræn þróun og gagnastýring

Íslandsbanki leitar að forstöðumanni Markaðslausna til að leiða þróun og rekstur mikilvægra lausna sem styðja við verðbréfaviðskipti, gjaldeyrismiðlun, eignastýringu og aðra lykilþætti fjárfestingarstarfsemi bankans. Lausnirnar gegna lykilhlutverki í daglegum rekstri og þjónustu við einstaklinga, fyrirtæki, fjárfesta og lífeyrissjóði.

Þetta er stjórnendastarf þar sem viðkomandi ber ábyrgð á teymi sérfræðinga, mikilvægum viðskiptakerfum og því að tæknilausnir skili raunverulegu virði fyrir starfsemi bankans. Unnið er náið með viðskiptaeiningum, upplýsingatækni og öðrum lykilhaghöfum að þróun lausna sem sameina rekstraröryggi, skilvirkni og framþróun.

Forstöðumaður heyrir undir framkvæmdastjóra Stafrænnar þróunar og gagnastýringar og er hluti af stjórnendateymi sviðsins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Leiða fjölbreytt teymi sérfræðinga og bera ábyrgð á daglegum rekstri, þróun og árangri deildarinnar.
  • Bera ábyrgð á rekstri, stöðugleika, öryggi og áframhaldandi þróun mikilvægra viðskiptakerfa.
  • Móta framtíðarsýn fyrir kerfi og viðskiptaferla í samræmi við tæknistefnu bankans og taka þátt í forgangsröðun verkefna.
  • Stýra samskiptum, samningum og eftirfylgni gagnvart innlendum og erlendum tæknibirgjum.
  • Hafa yfirsýn yfir kostnað, samninga, fjárfestingar og líftíma lausna, þar á meðal áætlanagerð, frávikagreiningu og samþykkt reikninga.
  • Tryggja viðeigandi stjórnarhætti, áhættustýringu og rekstraröryggi í lausnum og ferlum deildarinnar.
  • Fylgja eftir og vinna úr athugasemdum innri og ytri úttektaraðila.
  • Sinna reglulegri upplýsingagjöf og taka þátt í hagræðingar- og umbótaverkefnum bankans.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af stjórnun sérfræðiteyma og hæfni til að skapa skýra stefnu, forgangsröðun og árangur í daglegu starfi.
  • Þekking og reynsla af rekstri, þróun eða innleiðingu mikilvægra upplýsingakerfa, hugbúnaðarlausna eða stafrænna breytingaverkefna.
  • Góð tæknileg yfirsýn og geta til að brúa bil milli viðskipta, rekstrar og tæknilegra lausna.
  • Hæfni til að vinna með flókin viðfangsefni, taka upplýstar ákvarðanir og halda utan um mörg mikilvæg verkefni samtímis.
  • Reynsla af birgja- og samningastjórnun, þar á meðal samskiptum við innlenda eða erlenda tæknibirgja.
  • Skipulögð, lausnamiðuð og ábyrg vinnubrögð með áherslu á rekstraröryggi, stjórnarhætti og eftirfylgni.
  • Mjög góð samskiptafærni og geta til að miðla upplýsingum skýrt til ólíkra hópa, bæði á íslensku og ensku.
  • Kostur: Framhaldsnám á háskólastigi. Að öðrum kosti 5–10 ára sérhæfð starfsreynsla og yfirgripsmikil þekking innan starfssviðsins.
Auglýsing birt24. september 2026
Umsóknarfrestur8. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Hagasmári 3, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁkveðniPathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.ÁætlanagerðPathCreated with Sketch.AðlögunarhæfniPathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.FjárhagsáætlanagerðPathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.HugmyndaauðgiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.MannauðsstjórnunPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.RáðningarPathCreated with Sketch.SamningagerðPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.StarfsmannahaldPathCreated with Sketch.StefnumótunPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.VaktaskipulagPathCreated with Sketch.VandvirkniPathCreated with Sketch.VerkefnastjórnunPathCreated with Sketch.Verkefnastjórnun í upplýsingatækniPathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.ÞjónustulundPathCreated with Sketch.Þolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar