
Sérfræðingur í hugbúnaðarprófunum (Quality Engineer)
Hugbúnaðarfyrirtækið SnerpaPower óskar eftir að ráða sérfræðing í hugbúnaðarprófunum til starfa. Viðkomandi mun bera ábyrgð á að tryggja gæði hugbúnaðarlausnar fyrirtækisins og taka virkan þátt í þróun, framkvæmd og umbótum ferla.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Hanna, framkvæma og viðhalda prófunarstefnu og -áætlunum fyrir nýja virkni og útgáfur.
- Þróa og auka sjálfvirknivæðingu prófana.
- Staðfesta gæði hugbúnaðar áður en nýjar útgáfur eru settar í rekstur og leggja mat á hvort þær séu tilbúnar til útgáfu.
- Starfa náið með þróunarteymi í gegnum allt þróunarferlið til að greina og leysa vandamál á fyrstu stigum.
- Prófa bakendaþjónustur (API), samþættingar og virkni notendaviðmóts.
- Skrá og fylgja eftir hugbúnaðargöllum með markvissum og skipulögðum hætti.
- Taka þátt í umbótum á gæðastjórnunarferlum, útgáfuferlum og verkháttum þróunarteymis.
- Stuðla að auknum áreiðanleika, betri afköstum og bættri notendaupplifun fyrir hugbúnaðarlausnina.
- Vera talsmaður gæðahugsunar innan teymisins og stuðla að skilvirkum og hagnýtum prófunum.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun í tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði eða sambærilegt tækninám.
- Reynsla af hugbúnaðarprófunum.
- Reynsla af prófunum á vefviðmóti og API-þjónustum.
- Góður skilningur á hugbúnaðarþróunarferlum og útgáfustjórnun.
- Reynsla af notkun Git.
- Sterk greiningarhæfni, nákvæmni og gæðamiðað hugarfar.
- Frumkvæði, lausnamiðuð nálgun og áhugi á umbótum á ferlum.
- Framúrskarandi samskiptafærni og geta til að vinna náið með þróunarteymi og vöruteymi.
- Forvitni um nýja tækni, þar með talið nýtingu gervigreindar í hugbúnaðarprófunum.
Um fyrirtækið:
SnerpaPower er íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki sem þróar og rekur SaaS-lausn sem nýtir gervigreind fyrir orkusækinn iðnað. Fyrirtækið hefur þróað tækni sína í samstarfi við iðnfyrirtæki sem eiga við flóknar áskoranir í raforkunotkun og áætlanagerð og lausnin hefur þegar sannað gildi sitt hjá viðskiptavinum.
Gildi SnerpaPower eru: Hugsa stórt – Framúrskarandi gæði – Samvinna – Sjálfbærni
Umsóknarfrestur er til og með 12. október 2026 en unnið verður úr umsóknum um leið og þær berast. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir aðilar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
Nánari upplýsingar veitir Lea Kristín Guðmundsdóttir ([email protected]) í síma 511-1225.
Íslenska
Enska










