VIRK Starfsendurhæfingarsjóður
VIRK Starfsendurhæfingarsjóður
VIRK Starfsendurhæfingarsjóður

Sviðsstjóri upplýsingatækni- og gagnamála

VIRK leitar að framsýnum leiðtoga sem vill móta og leiða þróun tækni, gagna og stafrænnar þjónustu og hafa þannig áhrif á stafræna framtíð VIRK.

Sviðsstjóri leiðir svið upplýsingatækni- og gagnamála og ber heildarábyrgð á stefnumótun, forgangsröðun, rekstri og þróun upplýsingatækni, stafrænnar þróunar og gagnamála hjá VIRK. Í starfinu felst að tryggja að upplýsingatækni, gögn og stafrænar lausnir styðji við stefnu, þjónustu og áframhaldandi þróun VIRK með öruggum, hagkvæmum og notendamiðuðum hætti.

Sviðsstjóri upplýsingatækni- og gagnamála heyrir undir forstjóra, starfar þvert á öll svið VIRK og ber ábyrgð á heildarskipulagi, mannaflaþörf, fjárhagslegri umgjörð og samhæfingu starfseminnar við önnur verkefni sviðsins.

Helstu verkefni:

  • Leiða svið upplýsingatækni og gagnamála og bera ábyrgð á heildarskipulagi, uppbyggingu, mannaflaþörf og faglegri þróun sviðsins.
  • Móta, innleiða og fylgja eftir stefnu og áætlunum VIRK á sviði upplýsingatækni, stafrænnar þróunar og gagnamála, með áherslu á nýsköpun og ábyrga hagnýtingu nýrrar tækni.
  • Ábyrgð á forgangsröðun verkefna, fjárhagsáætlun, kostnaðareftirliti, fjárfestingum og eftirfylgni með ávinningi verkefna sviðsins.
  • Heildarábyrgð á öruggum, hagkvæmum og notendamiðuðum rekstri, þróun og líftíma upplýsingakerfa og stafrænna lausna VIRK, þar á meðal tæknilegum arkitektúr, samþættingum, skýjaumhverfi og notendaþjónustu.
  • Móta og viðhalda umgjörð um gagnastjórnun í samstarfi við gagnaeigendur og bera ábyrgð á þróun og rekstri gagnavöruhúss og tæknilegri umgjörð greininga og upplýsingagjafar.
  • Ábyrgð á tæknilegri umgjörð upplýsingaöryggis, persónuverndar og rekstrarsamfellu í samstarfi við viðeigandi ábyrgðaraðila og tryggja að starfsemi sviðsins uppfylli viðeigandi kröfur.
  • Ábyrgð á innkaupum, samningagerð og samskiptum við birgja og veita forstjóra og öðrum stjórnendum ráðgjöf um tækifæri og áhættu á fagsviði sínu.

Við leitum að aðila með

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem á sviði tölvunarfræði, upplýsingatækni, verkfræði, viðskiptafræði, gagnavísinda eða stjórnunar.
  • Stjórnunarreynslu og sýnda hæfni til að leiða sérfræðinga og byggja upp árangursríkt samstarf.
  • Víðtæka reynslu af upplýsingatækni, rekstri upplýsingakerfa og þróun stafrænna lausna.
  • Góðan skilning á tæknilegum arkitektúr, samþættingum, notendaþjónustu, skýjaumhverfi og líftímastjórnun upplýsingakerfa.
  • Þekkingu og reynslu á sviði gagnastjórnunar, gagnavöruhúsa og hagnýtingar gagna.
  • Þekkingu á upplýsingaöryggi, persónuvernd og rekstrarsamfellu.
  • Reynslu af verkefna-, þjónustu- og breytingastjórnun og forgangsröðun verkefnasafns.
  • Hæfni til að meta kostnað, ávinning og áhættu og taka upplýstar ákvarðanir um fjárfestingar.
  • Stefnumiðaða hugsun og hæfni til að tengja þarfir starfseminnar við raunhæfar tæknilegar lausnir.
  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni.
  • Gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti.

Um VIRK

Hlutverk VIRK er að efla starfsgetu einstaklinga með heilsubrest sem stefna að aukinni þátttöku og virkni á vinnumarkaði.

VIRK hefur í samstarfi við fagaðila, fyrirtæki og stofnanir skilað samfélagslegum ávinningi með aukinni þátttöku einstaklinga á vinnumarkaði og er leiðandi í rannsóknum og þróun á sviði starfsendurhæfingar. Að VIRK standa öll helstu samtök launamanna og atvinnurekenda á vinnumarkaði.

VIRK er metnaðarfullur vinnustaður þar sem lögð er áhersla á jákvæðan starfsanda og sterka liðsheild. VIRK kappkostar að skapa jákvæða menningu með traustu fagfólki. Gildi VIRK eru Fagmennska, Virðing og Metnaður.


Umsóknarfrestur er til og með 5. október 2026.

Sótt er um starfið á: https://www.vinnvinn.is/

Umsókn um starfið skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

Umsjón með starfinu hafa Auður Bjarnadóttir ([email protected]) og Unnur Ýr Konráðsdóttir ([email protected]).

Auglýsing birt22. september 2026
Umsóknarfrestur5. október 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Borgartún 18, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar