Forsætisráðuneytið
Forsætisráðuneytið
Forsætisráðuneytið

Lögfræðingur hjá úrskurðarnefnd um upplýsingamál

Forsætisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar starf lögfræðings hjá úrskurðarnefnd um upplýsingamál. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál er sjálfstæð og óháð stjórnsýslunefnd sem leysir úr ágreiningsmálum um aðgang almennings að gögnum hjá hinu opinbera.

Ráðuneytið sér nefndinni fyrir ritara- og skrifstofuþjónustu sem stendur en starfið færist síðan til nefndahúss þegar það tekur til starfa.

Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf. Frestur til að sækja um starfið er til og með 2. nóvember næstkomandi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf um áramótin.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfið felst fyrst og fremst í aðstoð við málsmeðferð hjá úrskurðarnefndinni og undirbúningi draga að úrskurðum. 

Menntunar- og hæfniskröfur

Umsækjandi skal hafa lokið fimm ára námi í lögfræði með BA- og meistaragráðu eða kandídatsprófi og búa yfir haldgóðri þekkingu á stjórnsýslurétti. Reynsla af beitingu upplýsingalaga er kostur. Gerð er krafa um framúrskarandi íslenskukunnáttu og ritfærni. Æskilegt er að umsækjandi sé sjálfstæður í vinnubrögðum og hafi góða samskiptahæfni.

Auglýsing birt19. október 2026
Umsóknarfrestur2. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Hverfisgata 4a-6a, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar