

Viðskiptastjóri
AÞ-Þrif leitar að öflugum og metnaðarfullum viðskiptastjóra til að styrkja teymi sérverkefna.
Við leitum að einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á sölu, kann að veita framúrskarandi þjónustu og þekkir hvernig á byggja upp langtímaviðskiptasamband. Starfið er fjölbreytt og krefjandi og hentar vel einstaklingi sem nýtur þess að vera í samskiptum við fólk og finna lausnir.
Sem viðskiptastjóri sérverkefna gegnir þú lykilhlutverki í að þróa ný viðskipti og viðhalda eldri viðskiptasamböndum, greina þarfir viðskiptavina og tryggja fagleg samskipti og góða þjónustu
-
Sala og ráðgjöf til nýrra og núverandi viðskiptavina.
-
Móttaka og eftirfylgni fyrirspurna og sölutækifæra.
-
Heimsóknir til viðskiptavina, þarfagreining og umfangsmat verkefna.
-
Tilboðsgerð og eftirfylgni tilboða í samstarfi við þjónustustjóra.
-
Uppbygging og viðhald öflugra viðskiptasambanda.
-
Náið samstarf við þjónustu- og verkstjóra við skipulagningu og eftirfylgni verkefna.
-
Eftirfylgni með ánægju viðskiptavina, gæðum þjónustu og arðsemi verkefna.
-
Greining nýrra viðskiptatækifæra og þróun þjónustu.
-
Reynsla af sölu, viðskiptastjórnun eða sambærilegum störfum.
-
Framúrskarandi samskipta- og þjónustuhæfni.
-
Sjálfstæð, skipulögð og lausnamiðuð vinnubrögð.
-
Góð viðskiptavitund og hæfni til að greina þarfir viðskiptavina.
-
Frumkvæði, metnaður og hæfni til að fylgja málum eftir.
-
Góð almenn tölvukunnátta og geta til að tileinka sér ný kerfi.
-
Góð íslensku- og enskukunnátta.
-
Ökuréttindi.
Enska
Íslenska










