
Hagvangur
Hagvangur er ráðninga- og ráðgjafafyrirtæki sem býður þjónustu við flest það er snýr að mannauðsmálum. Hjá Hagvangi starfa 8 sérfræðingar við ráðningar og stjórnenda- og mannauðsráðgjöf. Hagvangur hefur alla tíð einbeitt sér að faglegum ráðningum og starfsmannaleit og hefur þjónustað hundruði viðskiptavina við ráðningar, ráðgjöf, persónuleika- og hæfnipróf og margt fleira.
Starfsfólk Hagvangs hefur unnið mikið brautryðjendastarf í ráðningum og ráðgjöf á Íslandi. Áralöng þekking og reynsla af atvinnulífi á Íslandi, breitt tengslanet og gott orðspor eru meðal þeirra þátta sem við erum gríðarlega stolt af. Við höfum það að leiðarljósi að leggja stöðuga áherslu á nýjungar í þjónustu og áreiðanleika í öllum þeim störfum sem við tökum okkur fyrir hendur.
Í upphafi beindust sjónir Hagvangs mest að ráðningum. Fyrst í stjórnunar- og sérfræðistörf en fljótlega fór Hagvangur að bjóða viðskiptavinum sínum alhliða þjónustu við ráðningar á öllum sviðum atvinnulífisins.

Sölumaður varahluta
Viltu starfa hjá öflugu fyrirtæki sem flytur inn og þjónustar vinnuvélar og tæki fyrir íslenskan markað? Við leitum að þjónustulunduðum og lausnamiðuðum einstaklingi til að sinna fjölbreyttu og ábyrgðarmiklu starfi á sviði varahluta og þjónustu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ráðgjöf, tilboðsgerð og sala á varahlutum og tengdum vörum
- Samskipti við viðskiptavini og afhending á vörum
- Umsjón með pöntunum og innkaupum
- Móttaka, skráning og frágangur vörusendinga
- Tiltekt pantana og eftirfylgni með afhendingum
- Samskipti við erlenda framleiðendur og birgja
- Þátttaka í að tryggja framúrskarandi þjónustu og ánægju viðskiptavina
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af störfum tengdum bifreiðum, vinnuvélum, varahlutum eða tæknibúnaði
- Góð þjónustulund og rík samskiptahæfni
- Skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
- Lausnamiðað hugarfar og jákvætt viðmót
- Góð tölvukunnátta
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Auglýsing birt8. október 2026
Umsóknarfrestur18. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Skógarhlíð 12, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Rekstrarstjóri Tækjaverkstæðis - Keflavíkurflugvöllur
Icelandair

Öflugt viðgerðarfólk á verkstæði Vélafls
Vélafl ehf

Sölumaður á matvörusviði
Danól

Laghentur viðgerðarmaður
Stjörnugrís hf.

Vélvirki, vélstjóri
Stálorka

Armur ehf. óskar eftir starfsfólki
Armur ehf.

Sölu- og þjónusturáðgjafi í Reykjanesbæ
VÍS

Sölu- og þjónusturáðgjafi á Akranesi
VÍS

Viðskiptastjóri Já
Sýn

Hefur þú reynslu af vinnuvélum og tækjum og vilt vinna á skemmtilegum vinnustað
Vinnueftirlitið

Sölufulltrúi - Timburverslun BYKO
Byko

Stöðvarstjóri á Selfossi
Frumherji hf