

Sölu- og þjónusturáðgjafi í Reykjanesbæ
Viltu taka þátt í að byggja upp öflugt þjónustuteymi VÍS í Reykjanesbæ og hafa raunveruleg áhrif á upplifun viðskiptavina?
Við leitum að jákvæðum og framsýnum sölu- og þjónusturáðgjafa á þjónustuskrifstofu VÍS í Reykjanesbæ. Skrifstofan er staðsett í miðbæ Reykjanesbæjar, að Hafnargötu 57.
Viðkomandi þarf að búa yfir framúrskarandi þjónustulund og hæfni til að veita nýjum og núverandi viðskiptavinum á einstaklingsmarkaði faglega ráðgjöf og þjónustu.
-
Að veita framúrskarandi þjónustu og ráðgjöf til viðskiptavina í gegnum þjónustuleiðir
-
Frumkvæðissamskipti og sala í samræmi við þarfir hvers og eins
-
Fagleg og persónuleg ráðgjöf varðandi tryggingar og tjón
-
Önnur tilfallandi verkefni
-
Góð samskiptahæfni
-
Framúrskarandi þjónustulund, ástríða og metnaður fyrir því að veita úrvals þjónustu
-
Reynsla af sölustörfum er kostur
-
Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
-
Metnaður í því að gera sífellt betur og vinna að umbótum
-
Menntun sem nýtist í starfi
-
Góð færni í töluðu og rituðu máli á íslensku og ensku, pólskukunnátta kostur
-
Framúrskarandi vinnustað með einstaka vinnustaðamenningu
-
Fyrirmyndarfyrirtæki með áherslu á jafnrétti
-
Virkt starfsmannafélag sem veitir m.a. aðgang að orlofshúsum
-
Árlegur líkamsræktarstyrkur
-
Samgöngustyrkur vegna vistvænna samgangna til og frá vinnu
-
Heilsufarsskoðun, bólusetning og heilsueflandi fræðsla
Íslenska
Enska










