OK
OK
OK

Tæknifólk í Framlínuþjónustu

Fjar- og vettvangsþjónustuteymi OK stækkar og við leitum að einstaklingi með góða reynslu af notendaþjónustu. Starfið hentar einkar vel þjónustuliprum einstaklingi sem á auðvelt með samskipti við viðskiptavini hvort sem er í síma eða í eigin persónu.

Um er að ræða fullt starf á dagtíma frá 09:00-17:00 alla virka daga.

Hjá OK starfar samhentur hópur fólks og er kapp lagt á að viðhalda góðum starfsanda, en það hefur skilað sér í ánægðu starfsfólki sem hefur fengið tækifæri til að vaxa og dafna í leik og starfi. 

Hjá OK starfar fjölbreyttur hópur fólks og hvetjum við öll sem uppfylla hæfnikröfur og hafa áhuga á starfinu til að sækja um, óháð kyni.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Tæknileg aðstoð og bilanagreining fyrir viðskiptavini
  • Þjónusta við viðskiptavini í síma og í gegnum fjarþjónustu
  • Rekstur og umsýsla útstöðva og jaðartækja
  • Umsýsla og aðstoð í Microsoft 365 umhverfi
  • Skráning, flokkun og úrlausn verkbeiðna
  • Vettvangsþjónusta eftir þörfum
  • Önnur tilfallandi verkefni tengd upplýsingatækni og þjónustu
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Nám í kerfisstjórnun eða önnur menntun sem nýtist í starfi er kostur
  • Góð reynsla af notendaþjónustu er nauðsyn
  • Hreint sakavottorð er skilyrði
  • Bílpróf er skilyrði
  • Öguð og sjálfstæð vinnubrögð í hröðu umhverfi
  • Geta til að vinna í hóp og vera hluti af teymi
  • Góð færni í íslensku og ensku, bæði skrifuðu og töluðu máli
  • Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri
Fríðindi í starfi

🔋 Miðlægar starfsstöðvar í Reykjavík með hleðslustæði
🚲 Líkamsræktarstyrkur til að styðja við heilsusamlegum líffsstíl
🚿 Hjólageymsla með rafmagni og aðgangur að sturtum
🥗 Mötuneyti á staðnum með salatbar og grænkerakostum
💪 Metnaðarfullt starfsumhverfi með möguleika á starfsþróun
🥳 Öflugt félagslíf á vegum starfsmannafélags og afþreyingarherbergi með pool-borði
🏆 Starfaðu hjá margverðlaunuðu fyrirmyndarfyrirtæki.

Auglýsing birt7. október 2026
Umsóknarfrestur15. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Skútuvogur 2, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar