
Starfsmaður í tæknideild Smárabíós
Við leitum að einstaklingi til starfa í tæknideild Smárabíós.
Viðkomandi þarf að geta sýnt frumkvæði, tekist á við krefjandi verkefni og hugsað í lausnum. Starfið hentar fólki með mikinn áhuga á tækni, þjónustu og samskiptum.
Hlutverk og ábyrgð
Starfið felur í sér uppsetningu, bilanagreiningar og ástandsskoðanir tækja á skemmtisvæði Smárabíós og í sýningarklefa.
Hæfniskröfur
Góð almenn tölvu- og tæknikunnátta. Áhugi á að læra á uppsetningu og bilanagreiningu raftækja, tæknilegt innsæi og áhugi á vélum og búnaði.
Góð samskiptahæfni, sé hugmyndaríkur, kraftmikill einstaklingur sem getur unnið sjálfstætt. Sýni frumkvæði í starfi og geti tekist á við krefjandi verkefni með bros á vör. Hafi hreint sakavottorð. Góð íslenskukunnátta skilyrði, eingöngu 20 ára og eldri.
Umsjón með viðhaldi og viðgerðum tækja á skemmtisvæði Smárabíós. Bilanagrening tækja.
Góð tölvukunnátta. Þekking og/eða mikill áhugi á tækjum og tölvum.
Íslenska
Enska





