Icelandair
Icelandair
Icelandair

Rekstrarstjóri Tækjaverkstæðis - Keflavíkurflugvöllur

***english below***

Icelandair leitar að sterkum og lausnamiðuðum leiðtoga til að stýra rekstri Tækjaverkstæðis á Keflavíkurflugvelli.

Við bjóðum spennandi og krefjandi starf í alþjóðlegu og fjölbreyttu starfsumhverfi þar sem öryggi, fagmennska og frábær samskipti eru grunnforsendur árangurs.

Starfssvið

  • Ber ábyrgð á daglegri starfsemi tækjaverkstæðis og leiðir faglegt teymi tæknifólks
  • Tryggir að viðhald, þjónusta og gæði séu í samræmi við verklagsreglur, öryggiskröfur og þjónustustaðla Icelandair
  • Ábyrgð á mannaflaáætlun, vaktaplani og verkaskiptingu í samstarfi við verkstjóra
  • Eflir jákvæða, árangursmiðaða og örugga vinnustaðamenningu
  • Metur þörf fyrir endurbætur, gerir umbótatillögur og leiðir innleiðingu breytinga
  • Fylgir eftir viðhaldsverkefnum, verkbeiðnum og tryggir rétta skráningu og frágang
  • Heldur utan um birgðir, búnað og tækjakost, þar með talið endurnýjun og langtímaáætlanir
  • Samskipti við aðrar deildir Icelandair og utanaðkomandi þjónustuaðila
  • Önnur tilfallandi verkefni sem tengjast rekstri og stjórnun verkstæðisins

Hæfnikröfur:

  • Iðnmenntun á sviði bifvélavirkjunar, vélvirkjunar eða sambærileg tæknimenntun
  • Reynsla af stjórnun eða verkstjórn í sambærilegu umhverfi er mikilvæg
  • Þekking á viðhaldi og rekstri vinnuvéla er kostur
  • Skipulagshæfni, sjálfstæði og sterk hæfni til að forgangsraða
  • Frábær samskiptafærni og hæfileiki til að leiða hóp fólks
  • Góð færni í íslensku og ensku, bæði í rituðu og töluðu máli
  • Góð tölvukunnátta og færni í að vinna með viðhaldskerfi
  • Rík öryggisvitund og markviss vinna að umbótum
  • Gilt ökuskírteini

Umsóknarfrestur til 27. október 2026, áhugasamir sendi inn umsókn ásamt ferilskrá og kynningarbréfi.

Stefna Icelandair er að stuðla að jafnrétti og fjölbreytileika á meðal starfsfólks og hvetur einstaklinga af öllum kynjum til að sækja um.

***

GSE Maintenance Service Operations Manager - Keflavík Airport

Icelandair is seeking a strong and solution-oriented leader to manage our operations for the GSE Maintenance Services at Keflavík Airport. This is an exciting and challenging role in an international and dynamic work environment, where safety, professionalism, and excellent communication are the foundations of success.
Responsibilities:

  • Lead the daily operations of the equipment workshop and manage a skilled team of technicians
  • Ensure maintenance, service quality, and operational standards comply with Icelandair procedures, safety requirements, and service levels
  • Oversee staffing plans, shift schedules, and task distribution in collaboration with supervisors
  • Foster a positive, results-driven, and safety-focused workplace culture
  • Identify improvement opportunities, propose corrective actions, and lead implementation of changes
  • Monitor maintenance tasks, work orders, and ensure accurate documentation and completion
  • Manage inventory, equipment, and workshop assets, including renewal planning and long-term maintenance strategies
  • Maintain effective communication with other Icelandair departments and external service providers
  • Carry out other tasks related to workshop operations and team leadership

Qualifications:

  • Technical education in automotive mechanics, machinery, or a comparable technical field
  • Proven experience in management or supervisory roles within a similar operational environment
  • Knowledge of maintenance and operation of industrial or heavy equipment is an advantage
  • Strong organisational skills, independence, and the ability to prioritise effectively
  • Excellent communication skills and the ability to lead and motivate a team
  • Good command of Icelandic and English, both written and spoken
  • Solid computer skills and experience working with maintenance systems
  • Strong safety awareness and a proactive approach to continuous improvement
  • Valid driver’s license

Application deadline is October, 27.nd. Interested applicants should submit their application, CV, and cover letter.

Icelandair upholds a policy of promoting equality and diversity within its workforce,encouraging individuals of all genders to apply for this position.

Auglýsing birt8. október 2026
Umsóknarfrestur27. október 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Keflavíkurflugvöllur, 235 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn ökuréttindiPathCreated with Sketch.BifvélavirkjunPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.RafeindavirkjunPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.VélvirkjunPathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.VinnuvélaréttindiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar